Það hefur líklega enginn farið varhluta af rigningu og roki í dag. Vatnselgur er víða í hjólförum á götum en sem betur fer hefur ekki verið mikið um að stöðuvötn myndist á götum.
Það gerðist þó á Bæjarhrauninu og er reyndar ekki óalgengt í vatnsveðrum. Yfirborðsvatn er ekki leitt í burtu eins og víða annars staðar í bænum heldur er það látið síast niður í jarðveginn. Með tímanum hefur jarðvegurinn þést og gjarnan vilja myndast stórir pollar eða stöðuvatn eins og gerðist á Bæjarhrauninu.
Starfsmenn bæjarins hafa reynt að losa stíflur með litlum árangri a.m.k. ennþá og eins og sjá má á meðfylgjandi myndum þrýstist vatn upp úr brunnum í götunni.
![baejarhraun_flod-7](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/2016/10/Baejarhraun_flod-7-1024x682.jpg)
![baejarhraun_flod-5](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/2016/10/Baejarhraun_flod-5-1024x683.jpg)
![baejarhraun_flod-1](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/2016/10/Baejarhraun_flod-1-1024x682.jpg)