Með nýrri flokkun við heimilin í Hafnarfirði þarf að endurskoða grenndargámakerfið.
Í minnisblaði sem lagt var fram í umhverfis- og framkvæmdaráði 22. febrúar sl. kemur fram að í dag séu grenndargámar á 6 stöðum, allir sem safna plasti, pappír og gleri. Með nýju kerfi við heimilin sé reiknað með að grenndargámar verði aðgengilegir íbúakjörnum í u.þ.b. 500-1.000 m radíus. Þessu er náð nema helst í Áslandi, Skarðshlíðinni, á Völlum 6 og Holtinu.
Á grenndarstöðum þarf núna skv. lögum að safna málmum, gleri og textíl. Allt sem má ekki lengur fara í ílátin heima við.
Í minnisblaðinu er sagt að ekki verði lengur nauðsynlegt að safna pappír og plasti á öllum grenndarstöðum líka, öll heimilin fái þetta hirt við húsvegg. Er talið að það séu þá líklega fyrirtækin sem eru að nýta þessa flokka mest en borgi ekki sorphirðugjald.
Tillaga samræmingarhóps (sem ekki er getið í fundargögnum) gerir tillögu að því að vera ekki með plast- og pappasöfnun á öllum stöðum. „Hins vegar mætti vera á einhverjum stöðum grenndarstöð sem er með alla flokkana.“
Sorpa hefur umsjón með rekstri grenndargámakerfisins á höfuðborgarsvæðinu fyrir sveitarfélögin. Núna er komið að útboði fyrir gámana og hirðu og er verið að vinna að því. Núverandi samningur rennur út í ársbyrjun 2024. Öll sveitarfélög þurfa því að vera búin að ákveða breytingar svo hægt sé að fara í útboðið fyrir mars 2023.
Lagt er til eftirfarandi:
- Bæta við stöðvum í Áslandi 3 og Skarðshlíð
- Finna nýja staðsetningu fyrir stöð á Holtinu
- Setja gáma fyrir málma, gler og textíl á alla staði,
- Setja gáma fyrir pappa og plast við Tjarnarvelli, Sólvang og Miðvang.
Ný sorpflokkun við heimili í maí
Stefnt er að því að dreifing á nýjum sorpílátum til heimila hefjist 2. maí nk. og taki um átta vikur að skipta út í öllum bænum.
- Fjórir sorpflokkar, safnað við heimili
- Lífrænt – Blandað – Pappír – Plast
- Uppleggið er ca 120 lítrar í hvern flokk
- Í samræmi við verðandi lögum
Nýjar tegundir tunna
- Öll sérbýli fá afhentar tvær nýjar 240 lítra tvískiptar tunnur
- Gömlu tunnurnar teknar nema íbúar óski sérstaklega eftir að halda
þeim - Íbúar geta óskað eftir fleiri tunnum gegn gjaldi (þurfa kaupa tunnuna en
aukagjald er fyrir þjónustuna, eins og í dag)
- Gömlu tunnurnar teknar nema íbúar óski sérstaklega eftir að halda
- Kör 660 lítra endurnotuð og endurskipulögð við fjölbýlin
- Fjölbýlum afhent 240 lítra tunna fyrir lífrænt
- Lífrænt og blandað í einni – pappír og plast í hinni
- Bærinn útvegar sérstaka bréfpoka fyrir lífrænan úrgang til allra í
upphafi verkefnis
- Bærinn útvegar sérstaka bréfpoka fyrir lífrænan úrgang til allra í
- Djúpgámar
- Tvískiptir gámar eða sér gámur fyrir hvern flokk
- Ath pokagáma við Norðurbakka – Þarf að leysa
„Borgað þegar hent er“*
- Setja örmerki á allar tunnur
- Krafa um vigt á sorphirðubílana
- * Í samræmi við verðandi lög 1. janúar 2023. Áætlað er að það taki gildi 1. janúar 2024 með viðeigandi breytingum á sorphirðugjöldum.
Losunartíðni íláta
- 2 vikna tíðni á báðum ílátum
Eign íláta
- Bærin afhendir íbúum nýju ílátin
- Sérbýlin fá 2×240 lítra tvískipt
- Fjölbýlin fá X magn hefðbundna 240 lítra
- Þarf að skoða nánar með núverandi djúpgáma
- Íbúar eiga ílátin og djúpgámana
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir tillögur starfshóps um samræmda sorpflokkun