fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimKynningGlæsilegar eignir á Dvergsreitnum komnar í sölu

Glæsilegar eignir á Dvergsreitnum komnar í sölu

Nítján íbúðir í ýmsum stærðum og fimm verslunar- eða þjónusturými á jarðhæð

Dvergsreiturinn á Lækjargötu 2 er verkefni sem Hafnfirðingar hafa beðið eftir með mikilli eftirvæntingu að sögn Arons Freys Eiríkssonar hjá fast­eignasölunni Ás.

Aron Freyr Eiríksson

Íbúðir sem henta stórum hópi fólks

„Á reitnum eru íbúðir sem henta stórum hópi fólks, allt frá 79 m² 2ja herbergja íbúðum og upp í 160 m² tveggja hæða 4ra herbergja íbúðir.

Frábært útsýni er úr mörgum íbúð­unum yfir lækinn, aðrar með útsýni upp að Hamrinum, yfir miðbæinn og enn aðrar með sjávarútsýni. Allar íbúðir hafa sérinngang og sér stæði í lokaðri bílageymslu.“

Aron segir gaman að sjá hversu vel hefur tekist til við að láta húsin samræmast umhverfinu og segir hann að þau á fasteignasölunni hafi heyrt á fólki að mikil ánægja ríki með útkomuna.

„Verslunar- og þjónustubilin eru einnig frábærlega staðsett með góðu auglýsingagildi og eru í stærðum sem henta stórum hópi fyrirtækja. Stærðir bilana eru frá 42,7 m² upp í 133 m².“

Fólki boðið að skoða

Segir Aron að hægt sé að skoða allar eignirnar samdægurs og hvetur hann því áhugasama til að hafa samband við Ás fasteignasölu.

Húsin á DvergsreitnumNánari upplýsingar um eignirnar:

Glæsilegar nýjar 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir við Lækjargötu 2 í miðbæ Hafnarfjarðar / Dvergsreiturinn.
Húsin á lóðinni eru 5 talsins með alls 19 íbúðum, 5 verslunar-/þjónustu­rým­um og sameiginlegri bílageymslu.

Stærðir íbúða: 79,2 – 161,7 m²
Verð: 74,9 – 129,9 millj. kr.

Stærðir atvinnurýma: 42,7 – 133,0 m²
Verð: 27,9 – 72,9 millj. kr.

  • Öllum eignunum fylgir sér stæði í lok­aðri bílageymslu.
  • Íbúðunum er skilað fullbúnum án megin gólfefna, votrými verða flísalögð.
  • Á yfirborði bílageymslu er sameigin­legur inngarður allra íbúða.
  • Gönguleiðir að stigahúsum verða snjó­bræddar og hellulagðar.
  • Lyfta er frá bílageymslu og upp í inn­garðinn.
  • Innréttingar og skápar eru frá HTH.
  • Í eldhúsi fylgir bakarofn, spanhelluborð, eyjuháfur með kolasíu (þar sem við á) annars er þunn útdraganleg vifta sem fellur undir efri skáp, frá AEG.
  • Frontar á ísskáp og uppþvottavél fylgja en ekki tækin.
  • Í baðherbergjum er handklæðaofn og gólfhiti sem tekinn er úr bakrás frá hand­klæðaofni.
  • Annars er hitakerfi hefð­bundið ofnakerfi.

Byggingaraðili er traustur verktaki, GG verk ehf. (www.ggverk.is)

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2