Sex umsækjendur sóttu um starf skipulagsfulltrúa en einn umsækjandi dró umsóknina sína til baka. Gengið hefur verið frá ráðningu Lilju Grétarsdóttur arkitekts í starfið en Lilja starfar nú sem vekefnastjóri hjá embætti skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar.
Umsækjendurnir voru:
- Brigita Kulyte, verslunarstjóri
- Gunnlaugur Jónasson, skipulagsfulltrúi
- Lilja Grétarsdóttir, arkitekt
- Natalia Aleksandra Sobczyk, þjónustufulltrúi
- Ósk Soffía Valtýsdóttir, deildarstjóri nýbygginga
Tekur Lilja við af Þormóði Sveinssyni sem hefur sagt starfi sínu lausu sem skipulagsfulltrúi eftir 8 ára starf. Hann hafði áður starfað sem arkitekt á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa í Hafnarfirði og m.a. hjá Plús arkitektum frá 2005 og hjá byggingarfulltrúanum í Reykjavík.