Bílastæðamál í miðbænum eru í brennidepli núna og á fundi bæjarráðs sl. fimmtudag var sviðsstjóra falið að vinna erindisbréf fyrir starfshóp sem skoðar bílastæðamál í miðbænum.
Guðmundur Bjarni Harðarson, framkvæmdastjóri Fjarðar, segir nauðsynlegt að taka bílastæðin föstum tökum því lausn á bílastæðamálum sé forsenda fyrir áframhaldandi uppbyggingu í miðbæ Hafnarfjarðar.
Segir hann að bæta þurfi aðgengi að verslun og þjónustu í miðbæ Hafnarfjarðar og auka framboð bílastæða með stýringu á umferð og mögulega með byggingu bílastæðakjallara eða bílastæðahúss.
Ekki ný umræða
Það er reyndar ekki nýtt af nálinni að athygli sé vakin á bílastæðamálum í miðbænum. Í desember 2002 lagði formaður miðbæjarnefndar til að byggt yrði bílastæðahús við Linnetsstíg og í september 2015 lögðu Miðbæjarsamtökin til að klukkuskífur yrðu teknar upp í miðbænum til að stýra notkun á bílastæðum.
Þá sagði í skýrslu og tillögum starfshóps um skipulag í miðbæ Hafnarfjarðar frá 25.01.2021: „Finna þarf viðunandi lausn er varða bílastæði“.
Einnig segir þar um miðbæi, að þeir þurfi að uppfylla ákveðin skilyrði til að vaxa og dafna:
- Miðbær þarf að vera aðgengilegur, snyrtilegur og öruggur.
- Hann verður að hafa sterkan staðaranda þar sem yfirbragð byggðar, verslun og þjónusta styrkja þessa ímynd.
- Einhvers konar faglegt eftirlit eða stjórnun verður að vera til staðar.
- Miðbær þarf að vera skemmtilegur og veita upplifun.
Ljóst sé að ef fyrirhugað er að byggja upp miðbæ Hafnarfjarðar þannig að hann uppfylli öll þessi skilyrði þá þurfi að auka framboð og stýra notkun bílastæða og tryggja góða aðkomu gesta og gangandi.
Gjaldtaka verði tekin upp í miðbænum
Í greinargerð með aðalskipulagi miðbæjarins frá 2001 eru sögð 832 bílastæði í miðbænum, við Strandgötu, Linnetsstíg og Fjarðargötu. Af því eru um 100 stæði í bílastæðakjallara Fjarðar.
Guðmundur Bjarni segir enga stýringu vera á notkun bílastæðanna. „Þau eru notuð sem langtímastæði af starfsfólki í miðbæ Hafnarfjarðar, íbúum í miðbænum, ferðalöngum á leið í frí, af þeim sem ferðast með almenningssamgöngum til Reykjavíkur og Keflavíkur og til geymslu á endurvinnslugámum og sorpgámum.“
Guðmundur Bjarni bendir á að enginn hafi eftirlit með að misnotkun á bílastæðum eigi sér stað þó sums staðar hafi verið sett upp skilti sem takmarki tímalengd stöðu á bílastæðum.
Telur hann nauðsynlegt að sett verði upp sjálfvirkt kerfi og myndavélar við innkeyrslu á svæðið og gjaldtaka tekin upp. Þó þannig að viðskiptavinir fái að leggja frítt í skamman tíma en eftir það verði hóflegt gjald tekið. Segir hann að taka þurfi tillit til íbúa á svæðinu í samræmi við ákvæði í eignaskiptarsamningum og hann vill að boðið verði upp mánaðaráskrift að bílastæðum.
Fjarðarfréttir fjallaði um bílastæðamál í miðbænum 12. mars 2021 þar sem m.a. kom fram að samþykkt um Bílastæðasjóð Hafnarfjarðar frá 2017 hafi lítil áhrif haft og þrátt fyrir umræður hafi virst sem enginn hafi þorað að taka ákvörðun um gjaldtöku eða aðra notkunarstýringu á bílastæðum í miðbænum.
Samþykkt um Bílastæðasjóð Hafnarfjarðar frá 2017 hefur lítil áhrif haft
Framtíðin
Ekkert varð úr heildarendurskoðun deiliskipulags miðbæjar Hafnarfjarðar sem þó hafði verið lögð töluverð vinna í og í þess stað var farið í að endurskoða miðbæjarskipulagið í áföngum. Fyrsti áfangi þess var endurskipulagning á svæði sem nefndur er reitur R1 og afmarkast af Strandgötu, Austurgötu og Linnetsstíg. Ljóst er að íbúum mun fjölga mikið á því svæði og bílastæðum fækka verulega. Sama er líklegt að gerist á reit R2 sem afmarkast af Fjarðargötu, Strandgötu og Linnetsstíg. Verði þar ekki gerð krafa um bílastæðahús mun bílastæðum fækka þar verulega líka.
60-70% fjölgun gesta
Guðmundur Bjarni segir að nú sé hafin vinna við mikla stækkun Fjarðar með fjölmörgum íbúðum, hótelíbúðum, bókasafni og verslunum.
„Þegar allt er tekið til má áætla að fjölgun gesta í miðbænum geti verið 60-70% og fjölgun starfsmanna um 10-20%. Því þarf að bæta við að lágmarki 200-250 bílastæðum,“ segir Guðmundur Bjarni sem fagnar því að vilji sé til þess hjá bæjaryfirvöldum að skoða bílastæðamálin í miðbænum.