fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirOpinn eldur örsök eldsvoðans í Drafnarslipp

Opinn eldur örsök eldsvoðans í Drafnarslipp

Samkvæmt rannsókn tæknideildar lögreglu bendir allt til þess að brunann í Drafnarslippnum í Hafnarfirði sl. sunnudag megi rekja til opins elds.

Í tilkyningu frá lögreglu segir að ekki sé hægt að fullyrða  hvort íkveikju eða óviljaverki sé um að kenna.

Lögreglan hefur rætt við allmarga í tengslum við málið, en það hefur ekki orðið til þess að upplýsa um brunann. Í þeim hópi eru fjögur ungmenni sem lýst var eftir, en lögreglan vill taka það sérstaklega fram að þau eru á engan hátt talin tengjast brunanum.

 

Vilja tala við fjögur ungmenni vegna stórbrunans við Drafnarslipp – Fjarðarfréttir (fjardarfrettir.is)

 

 

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2