fbpx
Þriðjudagur, desember 17, 2024
target="_blank"
HeimFréttirMenning og mannlífSveit Víðistaðaskóla sigraði á grunnskólaskákmóti Kiwanis

Sveit Víðistaðaskóla sigraði á grunnskólaskákmóti Kiwanis

Sveit Öldutúnsskóla sigraða í mars á grunnskólamóti 5.-7. bekkja

Grunnskólaskákmót Kiwanisklúbbsins Hraunborgar var haldið í Hvaleyrarskóla 10. maí sl. en mótið var fyrir nemendur 8.-10. bekkja.

Var þetta keppni milli skólanna og stóð sveit Víðistaðakóla uppi sem sigurvegari. Í öðru sæti varð sveit Setbergskóla og í þriðja sæti varð sveit Hvaleyrarskóla.

Er þetta annað grunnskólamótið sem Hraunborgarfélagar standa fyrir. Á fyrra móti í kepptu sveitir 9 grunnskóla og fengu allir skólarnir skáksett að gjöf. Nú bættis einn skóli við og fékk hann einnig skáksett að gjöf.

„Framtíðin er björt í skákinni í Hafnarfirði. Gaman að segja frá hvað allir stóðu sig vel bæði keppendur, liðsstjórar og áhorfendur. Virðing, heiðarleiki og yfirvegun skein hjá öllum,“ segir í tilkynningu frá Hraunborgarfélögum.

Sveit Víðistaðaskóla sigraði í keppni 8.-10. bekkja grunnskólanna.

Sex skákmenn tefla í hverri skólasveit. Skákmenn þeirra þriggja skáksveita sem ná hæstri vinningatölu og liðsstjóri þeirra voru sæmdir verðlaunapeningum og sigursveitin fékk farandbikar til varðveislu fram að næsta grunnskólamóti fyrrgreindra bekkja í Hafnarfirði.

Mótið var haldið í samvinnu við Hafnarfjarðarbæ og lék Valdimar Víðisson, formaður bæjarráðs fyrsta leiknum. Mótsstjórn var í höndum Helga Ólafssonar.

Grunnskólamót 5.-7. bekkja

Kiwanisklúbburinn Hraunborg stóð fyrir grunnskólaskákmót fyrir nemendur 5.-7. bekkja miðvikudaginn 22. mars sl. en þar tóku skáksveitir níu grunnskóla Hafnarfjarðar þátt.

„Einkunnarorð Kiwanishreyfingarinnar hér á landi eru, Börnin fyrst og fremst, og hefur Hraunborg lagt sig fram um að halda þeim fram í vitnisburði sínum og verkum og einkum látið sig varða hag og heill barna og ungmenna í bænum,“ eins og segir í tilkynningu.

Teflt var með nýjum taflmönnum sem Hraunborg lagði til mótsins og í lokin fékk hver grunnskóli í bænum tvö sett af taflmönnum að gjöf.

Sveit Öldutúnsskóla sem sigraði í keppni 5.-7. bekkja.

Sigurvegari var sveit Öldutúnsskóla og í öðru sæti var sveit Hvaleyrarskóla og í þriðja sæti var sveit Áslandsskóla.

Ljósmyndir: aðsendar

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2