fbpx
Þriðjudagur, nóvember 5, 2024
target="_blank"
HeimFréttirSkipulagsmálBæjarstjórnin mótmælir harðlega áformum Garðabæjar um að loka við Herjólfsbraut

Bæjarstjórnin mótmælir harðlega áformum Garðabæjar um að loka við Herjólfsbraut

Umferð um íbúðahverfi í Hafnafirði mun stóraukast við breytinguna

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar mótmælir harðlega fyrirhuguðum breytingum á lokun Garðahraunsvegar til austurs (gamla Álftanesveg) við Herjólfsbraut eins og fram kemur í auglýsingu um tillögu að breyttu deiliskipulagi Garðahrauns frá 7. sept sl. og Fjarðarfréttir greindi frá í frétt 7. september sl.

Í bókuninni segir að fyrirliggjandi tillaga, sem gerir ráð fyrir talsverðum breytingum á m.a. umferðartengingum, sé lögð fram án nokkurs samráðs né úttektar á umferðarmálum svæðisins.

T.v. má sjá Herjólfsbraut, sem á kortinu er merkt Herjólfsgata en á öðrum kortum heitir gatan Herjólfsbraut þar sem hún liggur í Garðabæ.
T.v. má sjá Herjólfsbraut, sem á kortinu er merkt Herjólfsgata en á öðrum kortum heitir gatan Herjólfsbraut þar sem hún liggur í Garðabæ.

„Nái tillagan fram að ganga mun umferð aukast stórlega í gegnum íbúðahverfi Norðurbæjar og hafa veruleg áhrif á heimilis- og starfsmenn Hrafnistu auk þess sem viðbragðstími sjúkra- og slökkviliðs lengist verulega inn á það svæði og nyrðri hluta Hafnarfjarðar.
Í fyrirliggjandi tillögu eru t.d. gerðar breytingar á umferðarmannvirkjum sem eiga sér ekki stoð í gildandi Aðalskipulagi Garðabæjar.“

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar skorar á bæjaryfirvöld í Garðabæ að falla frá fyrirhuguðum breytingum.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2