Opnaður hefur verið nýr og metnaðarfullur tómstundavefur hjá Hafnarfjarðarbæ. Vefurinn hefur að geyma allar helstu upplýsingar um námskeið og afþreyingu í sveitarfélaginu og er hægt að sía framboð íþrótta og frístunda eftir aldri.
Öll félög, fyrirtæki og samtök í Hafnarfirði hafa verið hvött til að skrá upplýsingar um allt það sem í boði er hjá þeim og veltur efni og innihald á virkni og skráningu allra þeirra sem bjóða upp á námskeið og tómstundir innan Hafnarfjarðar. „Við erum með þessu að svara ákalli íbúa, ungmenna sveitarfélagsins m.a. frá ungmennaráði og frá ungmennaþingi 2022 og fjölmenningarráðs um betra aðgengi að upplýsingum um það sem er í boði innan bæjarmarkanna. Það er svo mikið í boði alls staðar og jákvætt að auðvelda íbúum leitina að tómstund eða íþrótt við hæfi,“ segir Stella B. Kristinsdóttir fagstjóri frístundastarfs og forvarna hjá Hafnarfjarðarbæ.
Draumurinn er að hafa allt á einum stað
Markmiðið með nýjum tómstundavef er að bæta aðgengi að upplýsingum um framboð á íþrótta- og tómstundastarfi í Hafnarfirði. Bundnar eru vonir við að til framtíðar litið muni íbúar geta gengið að því vísu að upplýsingar um flest allt frístundastarf og afþreyingarmöguleika í sveitarfélaginu allt árið um kring fyrir alla aldurshópa verði aðgengilegar á einum og sama staðnum.
Þau félög, samtök og stofnanir sem enn eiga eftir að skrá upplýsingar um sitt framboð t.d. í sumar geta enn gert það í gegnum nýja vefinn: www.tomstund.is og þurfa sjálf að passa upp á uppfærslu upplýsinga. „Þetta er samstarfsverkefni okkar,“ segir Stella.