fbpx
Sunnudagur, nóvember 24, 2024
target="_blank"
HeimFréttirLindex opnar í Firði á morgun

Lindex opnar í Firði á morgun

Lindex á Íslandi opnar á morgun, fimmtudag, nýja verslun fyrir barnafatnað í verslunarmiðstöðinni Firði. Lindex er ein stærsta tískufatakeðja Norður-Evrópu með um 430 verslanir í 16 löndum. Lindex býður upp á tískufatnað fyrir konur, undirföt, snyrtivörur og fylgihluti sem og fatnað á börn og unglinga á hagkvæmu verði.

Við erum ótrúlega spennt fyrir að mæta í Hafnarfjörðinn en ég á ættir mínar að rekja hingað og eigum við fjölskyldan verslunarsögu hér sem spannar yfir tvö hundrað ár og stendur því opnunin okkur mjög nærri. Það hefur verið sérlega ánægjulegt að vinna að þessu með fólkinu í Firðinum og við erum virkilega spennt fyrir að koma í Hafnarfjörðinn,“ segir Lóa D. Kristjánsdóttir, umboðsaðili Lindex Íslandi.

Miklar breytingar s í Firði sem kynntar hafa verið en verslunarsvæði á jarðhæð mun u.þ.b. tvöfaldast með tengingu við Strandgötu, aðalverslunargötuna og fyrirhugað er margmiðlunarbókasafn ásamt stórbættu.

Við erum afar glöð að taka á móti Lindex hér í Firði samhliða þeim miklu breytingum sem hér standa fyrir dyrum. Við teljum að barnafatnaður Lindex fari einstaklega vel með þeim verslunum og þjónustu sem er nú þegar til staðar í Firði, sem dæmi má nefna eina stærstu leikfangaverslun landsins. Við horfum því fram á veginn full af bjartsýni,“ segir Guðmundur Bjarni Harðarson, framkvæmdastjóri Fjarðar.

Verslunin mun bjóða upp á ungbarnafatnað Lindex í stærðunum 44-86 sem inniheldur einungis umhverfisvæna, lífræna bómull ásamt barna- og unglingafatnaði í stærðunum 92-170. Verslunin mun standa óbreytt á meðan á ofangreindum framkvæmdum stendur en unnið er að þvı́ að Lindex opni stærri og enn betri verslun í endurbættri verslunarmiðstöð sem áætlað er að opni ı́ lok næsta árs.

Lindex leggur mikla áherslu á samfélagslega ábyrgð og virðingu fyrir þvı́ hvernig varan er framleidd þ.e. umhverfið og fólkið sem framleiðir vöruna og þetta endurspeglast best í stöðugt auknu framboði vara framleiddum úr lı́frænni bómull. Fyrirtækið hefur einsett sér að 80% af framleiðslunni verði framleitt með sjálfbærum og umhverfisvænum hætti fyrir lok næsta árs. Langstærstur hluti af barnalínu Lindex er framleiddur úr lífrænni bómull og endurunnum efnum og við hönnun eru þarfir barnanna í fyrirrúmi. Fyrirtækið vinnur einnig gegn kynjamisrétti í fátækustu ríkjum heims og hjálpar konum að sækja sér menntun og heilbrigðisþjónustu í gegnum verkefni eins og HERproject og WEWomen by Lindex, eins og segir í tilkynningu frá Lindex.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2