fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimÁ döfinniFjölbreytt dagskrá á Sönghátíð í Hafnarborg

Fjölbreytt dagskrá á Sönghátíð í Hafnarborg

Tónleikaveisla

Sönghátíð í Hafnarborg er nú haldin í sjöunda sinn og stendur til 2. júlí.

Hátíðin er helguð klassískri tónlist, ljóða-, óperu- og kórsöng en þema Sönghátíðar í ár er „Blessuð sólin elskar allt“. Þá er markmið hátíðarinnar að heiðra klassíska söngtónlist og auka almenna þekkingu á list raddarinnar með tónleikum og námskeiðahaldi.

Á Sönghátíð í Hafnarborg í ár verður boðið upp á átta tónleika með framúrskarandi söngvurum og hljóðfæraleikurum, auk margvíslegra námskeiða fyrir börn og fullorðna, leika sem lærða. Stofnendur og stjórnendur Sönghátíðar eru Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzósópran, og Francisco Javier Jáuregui, gítarleikari.

Dagskrá

Laugardaginn 24. júní kl. 17
I Wonder as I Wander
Eyjólfur Eyjólfsson, tenór, langspil og flauta
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzósópran
Elena Jáuregui, fiðla
Francisco Javier Jáuregui, gítar

Sunnudaginn 25. júní kl. 17
Óperugala – í minningu Garðars Cortes
Hallveig Rúnarsdóttir, sópran
Arnheiður Eiríksdóttir, mezzósópran
Cesar Alonzo Barrera, tenór
Unnsteinn Árnason, baritón
Hrönn Þráinsdóttir, píanó

Mánudaginn 26. júní kl. 20
Reimagining
Kammerkórinn Kyrja

Föstudaginn 30. júní kl. 17
Fjölskyldutónleikar (ókeypis aðgangur)
Dúó Stemma: Herdís Anna Jónsdóttir og Steef van Oosterhout

Laugardaginn 1. júlí kl. 17
Pur ti miro – barokktónleikar
Álfheiður Erla Guðmundsdóttir, sópran
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzósópran
Guðrún Óskarsdóttir, semball
Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir, fiðla
Gunnhildur Daðadóttir, fiðla
Anna Hugadóttir, víóla
Ólöf Sigursveinsdóttir, selló

Sunnudaginn 2. júlí kl. 17
Undir yfirborðinu/Sous la surface
Cantoque Ensemble
Ensemble Chœur3 frá Sviss/Frakklandi/Þýskalandi
Philippe Koerper, saxófón og hljóðsnælda
Stjórnandi: Abélia Nordmann

Miðasala er á www.tix.is

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2