fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirSamningar náðust loks við sérgreinalækna

Samningar náðust loks við sérgreinalækna

Sjúkratryggingar Íslands og Læknafélag Reykjavíkur hafa náð samkomulagi um þjónustu sérgreinalækna. Félagsmenn Læknafélags Íslands eru aðallega læknar sem starfa að hluta eða öllu leyti sjálfstætt en Læknafélag Reykjavíkur er hluti af Læknafélagi Íslands.

Samningurinn er langtímasamningur til 5 ára og tekur samningurinn að fullu gildi 1. september 2023.

Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að samningurinn stuðli að umtalsverðri lækkun á greiðsluþátttöku almennings í þjónustu sérfræðilækna og myndi styrka umgjörð um starfsemi sérfræðilækna sem stuðlar bæði að framþróun þjónustunnar og auknu aðgengi að henni.

Í samningnum er aukið fjármagn til þjónustu sérgreinalækna um 4,2 milljarða króna á ársgrundvelli en meginhluti þeirra hækkunar er tilkominn vegna verðlags- og launaþróunar.

Aukagjöld falla niður

Aukin þátttaka Sjúkratrygginga í kostnaði þjónustunnar leiðir til lægri kostnaðar fyrir sjúklinga þar sem aukagjöld sem lögð hafa verið á þjónustuna undanfarin ár, falla niður. Ætla má að með nýjum samningi lækki greiðsluþátttaka almennings um allt að 3 milljarða króna á ári.

Með samningnum er bundinn endi á þá óvissu og óhagræði sem hlotist hefur af samningsleysi undanfarinna ára en sérgreinalæknar hafa verið samningslausir síðan í janúar 2019.

Á samningstímanum verður unnið að ýmsum samstarfsverkefnum sem er ætlað að efla umgjörð starfsemi sérgreinalækna með það að markmiði að auka þjónustu við sjúklinga og tryggja að starfsemi sérgreinalækna endurspegli öra þróun læknavísinda. Samningurinn felur í sér ýmis nýmæli þessu til stuðnings og ber helst að nefna sérstaka hvata fyrir lækna til að vinna innan svonefndra starfsheilda sem sinna gæðamálum, stuðla að bættu aðgengi að þjónustu og styðja við þverfaglega teymisvinnu. Jafnframt verður komið á fót samráðsnefnd aðila frá Sjúkratryggingum Íslands og Læknafélagi Reykjavíkur sem mun vinna í sameiningu að heildstæðri þjónustu- og kostnaðargreiningu og reglulegri endurskoðun gjaldskrár. Samningnum er ætlað að styðja við framþróun í þjónustu sérfræðilækna með sérstakri áherslu á nýsköpun, stafræna þróun og fjarheilbrigðisþjónustu.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2