fbpx
Laugardagur, nóvember 16, 2024
target="_blank"
HeimFréttirAtvinnulífNý lögmannsstofa í Hafnarfirði

Ný lögmannsstofa í Hafnarfirði

Lögmannsstofa Hafnarfjarðar

Nú býðst Hafnfirðingum sem og öðrum lögmannsþjónusta hjá Lögfræði­þjónustu Hafnarfjarðar sem er ný og framsækin lögmannsstofa að Dals­hrauni 5 í Hafnarfirði.

Eigandi stofunnar er Elísabet Péturs­dóttir lögmaður, sem starfaði í tæpan áratug í Stjórnarráðinu áður en hún opnaði lögmannsstofu í heimabyggð. Framkvæmdarstjóri stofunnar er Sigmundur Ingi Sigurðsson, lögfræð­ingur.

Á stofunni er veitt alhliða lögfræði­þjónusta og ráðgjöf til einstaklinga, fyrir­tækja, stofnana og félaga, þar á meðal húsfélaga. Á stofunni er mikil sér­fræðiþekking á ýmsum mála­flokk­um, svo sem á mannréttindum, stjórn­sýslurétti, fjölskyldurétti, barnarétti, vinnurétti o.fl.

„Ástæða þess að við fórum í þennan rekstur er að okkur langaði til að starfa við það sem við gerum best í heima­byggð. Í mínum huga er áríðandi að Hafnfirðingar geti sótt alla helstu þjónustu í bænum, þar á meðal lög­manns­þjónustu. Hlutverk lögmanna í samfélaginu er mikilvægt. Kynslóðirnar á undan okkur og þar á undan hafa boðið upp á þessa þjónustu hér í bænum og að mínu mati er mikilvægt fyrir ört stækkandi bæjarfélag að hér starfi öflugar lögmannsstofur,“ segir Elísabet um aðdraganda ákvörðunar­innar að opna lögmannsstofu í bænum.

Allar frekari upplýsingar um þá þjón­ustu sem Lögfræðiþjónusta Hafnar­fjarð­ar býður upp á má finna á vefsíð­unni loghaf.is.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2