fbpx
Fimmtudagur, júlí 18, 2024
HeimFréttirViðurkenningar voru veittar fyrir snyrtilegar lóðir

Viðurkenningar voru veittar fyrir snyrtilegar lóðir

Snyrtileikinn 2023

Hafnarfjarðarbær veitti sl. fimmtudag viðurkenningar fyrir snyrtilegar lóðir í Hafnarfirði en viðurkenningarnar nefnast Snyrtileikinn.

Bæjarbúum var boðið að senda inn ábendingar og bárust nokkuð margar ábendingar í ár að sögn Berglindar Guðmundsdóttur hjá Hafnarfjarðarbæ.

Starfsmaður umhverfis- og skipulagssviðs var á ferð og flugi í allt sumar til þess að skoða vandlega allar þær tilnefningar sem bárust, ásamt því að koma sjálfur með tillögur að viðurkenningum.

Viðurkenningarnar eru veittar fyrir framlag til þess að gera Hafnarfjörð að fallegri bæ. Með verðlaununum var ekki verið að segja að einn af verðlaunagörðunum hafi verið fallegri en annar, en allir hafi þér eitt sameiginlegt, þeir eru snyrtilegir og til mikillar prýði.

Verktakafyrirtæki fékk viðurkenningu

Fulltrúar GG verks

Í ár var í fyrsta sinn verktakafyrirtæki veitt viðurkenningu fyrir vandaðan og fallegan frágang þegar GG-verki var veitt viðurkenning fyrir frágang á Lækjargötu 2 og Stekkjarbergi 9.

Umsagnir um lóðirnar:

Dvergsreiturinn Lækjargötu 2

Hér hefur verið gerð mikil breyting á miðbæjarrými sem tekist hefur verið ákaflega vel.  Það sem vekur eftirtekt er að reiturinn tekur mið af umhverfi sínu og þessi húsaklasi er í réttum skala en samt með nútímalegt yfirbragð. Garðrýmið leikur stórt hlutverk fyrir eigendur húsanna, þarna eru göngutengingar, fallegur gróður og yfirbragð allt fágað og fallegt. það er einhvern veginn góður andi á þessum stað.

Stekkjarberg 9

Hér hefur einnig tekist einstaklega vel að gera Stekkjarbergið að nútímalegum og fallegum reit í jaðri hins friðaða Stekkjarhrauns.  Þessi staður er einstakur í bænum, skjólgóður og með aðgengi að einstakri náttúruperlu með tengingar yfir í upplandið og í miðbæ. Mjög metnaðarfullur frágangur á garðsvæðum með hellulögðum gönguleiðum ásamt lýsingu og fallegum gróðri. Það er svo mikilvægt eins og þessi bæði dæmi sanna, að gera garðrýmin aðlaðandi og falleg.  Þau laða til sín fólk og auka á alla ánægju og útiveru og gera gæði svæðanna svo miklu betri. Það að dvelja í fallegu garðrými hafa jákvæð áhrif á alla vegu.

Álfaskeið 16

Eva Maria Helena Morland og Gísli Jónsson

 

Eva Maria Helena Morland og Gísli Jónsson

 

 

Þessi garður hefur vakið mikla athygli bæjarbúa um langt skeið.  Við höfum fylgst með honum um nokkurn tíma en framkvæmdagleðin er það mikil að alltaf hefur verið eitthvað í bígerð sem hefur komið í veg fyrir viðurkenningu -þar til nú.

Þvílíkt úrval af plöntum og þá aðallega fjölæringum, en úrvalið þar er sérstaklega fjölbreytt.  Þarna eru fallegar hellulagnir, gróðurhús, listmunir krúsidúllur og allavegana fínerí.

Það er ljóst að hér er mikill garðaáhugi fyrir hendi.  Okkur finnst fallegt hvernig hraunið og landslagið hefur fengið að vera hluti af þessari uppbyggingu garðsins.

Það er mat okkar að þessi garður er mjög fallegur og til mikillar prýði.

Fjóluhlíð 12

Birna Bertha Guðmundsdóttir, Pétur Joensen

Pétur Joensen og Birna Bertha Guðmundsdóttir

Það var sérlega ánægjulegt að keyra inn Fjóluhlíðina á björtum sumardegi og sjá þennan glaðlega garð sem tók vel á móti gestum götunnar. Þvílík gróska og fjölbreytni í gróðri, mikil alúð er lögð við hvert einasta smáatriði. Öll beðin fagurlega kantskorin, og grasið mótað í skemmtileg mjúk form.  Það sem vakti sérstaka athygli var að það var búið að merkja hverja einustu plöntu með litlum merkimiða.  Þetta var mjög skemmtilegt að sjá.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem eigendur Fjóluhlíðar 12 enda er þessum garði mjög vel viðhaldið ár eftir ár.

Spóaás 24

Lovísa Traustadóttir og Valdimar Óskarsson

Lovísa Traustadóttir

Þessi garður er búinn að vera fallegur um árabil, hann er smart, nútímalegur og fjölskylduvænn. Pallaefni fengið að grána fallega og mikið úrval af fallegum plöntum.  Hef eiginlega aldrei sé svo fallegt gras áður. Eigendur flytja inn eigin garðhúsgögn sem verður að teljast mikill metnaður og svo er þarna líka geggjað útieldhús. Útsýnið gerir þennan garð eiginlega bara geggjaðan.

Víðiberg 7

Ásgerður Ingólfsdóttir og Jóhannes Pálmi Hinriksson

Fulltrúar Ásgerðar og Jóhannesar Pálma tóku við verðlaununum fyrir þeirra hönd.

Mikið sem aðkoman að þessu húsi er snyrtileg og vinaleg.  Mikil fjölbreytni í gróðri og í garðaflórunni almennt.  Þarna eru eigendur enn að bæta við nýjum gróðri og mátti sjá skemmtilega nýgræðinga sem nýlega var búið að setja niður. Eigendur fá líka hrós og þakkir fyrir að slá nokkuð myndarlega grasbala sem er fyrir framan húsið.  Virkilega snyrtilegt allt í kringum þetta hús.

Birkiberg 8

Ásthildur Ragnarsdóttir og Jón Rúnar Halldórsson

Ásthildur Ragnarsdóttir

Enn og aftur er Birkibergið að vekja athygli fyrir snyrtimennsku og fallega garða.  Hér er eldri garður sem hefur elst sérlega vel. Falleg aðkoma og planlausnir vel leystar þar sem hvert rými fær notið sín. Þessi garður er mjög smart og tengist náttúrunni á fallegan hátt.

 

Helga H. Magnúsdóttir og Hinrik Einarsson tóku við viðurkenningu fyrir hönd íbúa á Lækjargötu 2

Ljósmyndir: Fjarðarfréttir | Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2