fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttirBYKO nú einn af helstu samstarfsaðilum handknattleiksdeildar FH

BYKO nú einn af helstu samstarfsaðilum handknattleiksdeildar FH

BYKO og handknattleiksdeild FH hafa gert með sér samstarfssamning til næstu þriggja ára.

Með samningnum verður BYKO einn af helstu samstarfsaðilum handknattleiksdeildarinnar.

BYKO er með útibú á Selhellu í Hafnarfirði auk fjölda verslana um allt land sem og að vera með vefverslun með yfir 20 þúsund vörur í boði.

„Við erum gríðarlega ánægð að fá jafn öflugt fyrirtæki og BYKO til samstarfs við okkur. Öflug félög þurfa öfluga bakhjarla og með þessum samningi mun BYKO koma sterkt inn til að styðja við hið góða starf sem unnið er í Kaplakrika,“ sagði Sigurgeir Árni Ægisson framkvæmdastjóri hkd. FH við undirritunina.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2