fbpx
Þriðjudagur, nóvember 5, 2024
target="_blank"
HeimFréttirLandsátak í sundi er hafið - keppni á milli sundlauga!

Landsátak í sundi er hafið – keppni á milli sundlauga!

Syndum, landsátak í sundi var ræst í Sundlaug Kópavogs 1. nóvember.

Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og synda. Þeir metrar sem landsmenn synda, á meðan á átakinu stendur, safnast saman og á forsíðu syndum.is verður hægt að sjá hversu marga hringi landsmenn hafa synt í kringum Ísland.

Ávörp við setninguna fluttu Hafsteinn Pálsson, úr framkvæmdarstjórn ÍSÍ, Björn Sigurðsson, formaður Sundsambands Íslands og Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs.

Hafsteinn Pálsson, úr framkvæmdarstjórn ÍSÍ setti átakið með formlegum hætti og benti á kosti þess að hreyfa sig og nýta sundlaugarnar til þess.

Björn Sigurðsson, formaður Sundsambands Íslands sagði frá skemmtilegu verkefni innan Syndum, en í ár er ætlunin að setja kastljós á skólasund grunnskóla og tengja það við Ólympíuleikana í París 2024. Sundsambandið verður með tvo fulltrúa sem fara á Ólympíuleikana í París á næsta ári, þau Anton Svein Mckee og Snæfríði Sól Jórunnardóttur. Leiðin til Parísar frá Íslandi er 2.246 km og ætlunin er að fá grunnskólanemendur í skólasundi til að synda með táknrænum hætti sem samsvarar leiðinni til Parísar. Nokkrar sundlaugar munu fá heimsókn frá Antoni Sveini.

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs sagðist vera stolt af fólkinu sem kæmi í laugarnar jafnvel á hverjum degi til að bæta sína heilsu, því sund væri frábær leið til lýðheilsu. Hún var líka afar stolt af fólkinu sem skráði metrana sína inn í Syndum á síðasta ári, sem setti Sundlaug Kópavogs í efsta sæti á síðasta ári með yfir 1.900 km synta.

Sundgarpar Helgu Guðrúnar Gunnarsdóttur hjá Vatnsþreki busluðu svo átakið í gang.

Um verkefnið

  • Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. – 30. nóvember 2023.
  • Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna.
  • Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nota meðal annars sund til þess.
  • Átakið var formlega sett á laggirnar árið 2021 og fer nú fram í þriðja skipti.
  • Í átakinu taka landsmenn sig saman og synda hringi í kringum Ísland en í fyrra náðist að leggja að baki 10.2 hringi í kringum landið.
  • Síðustu ár hafa sýnt okkur með óyggjandi hætti að góð heilsa er ómetanleg.

Hvernig berum við okkur að?

Til þess að taka þátt þarf að skrá sig inn á syndum.is og fara í Mínar skráningar. Einfalt er að velja sér notendanafn og lykilorð og skrá synta metra.

Þeir sem eiga notendanafn úr Lífshlaupinu eða Hjólað í vinnuna geta notað það til að skrá sig inn.

Þeir sem eru þátttakendur í verkefninu eiga möguleika á að verða dregnir út og unnið frábæra vinninga.

Á heimasíðu verkefnisins www.syndum.is  má finna skemmtilegan fróðleik og upplýsingar um allar sundlaugar landsins.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2