fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttirMiklar umferðartafir á Reykjanesbraut vegna einstaklings á göngubrú

Miklar umferðartafir á Reykjanesbraut vegna einstaklings á göngubrú

Miklar umferðartafir voru á Reykjanesbraut um miðjan dag í dag vegna lögregluaðgerða í kjölfar þess að einstaklingur hafði klifrað upp á handrið á göngubrúnni gegnt Ásvallalaug.

Var allri umferð vísað í gegnum Vellina og langar bílaraðir voru alveg að Lækjargötu þegar mest var.

Lögreglan ræðir við einstaklinginn sem hafði klifrað upp á handrið göngubrúarinnar.

Málið virðist hafa leyst farsællega því umferð er nú eðlileg á brautinni.

Bifreiðaraðirnar voru orðnar mjög langar

Ekki náðist í fulltrúa lögreglu við vinnslu fréttarinnar.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2