fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttirLögregla leitar eftir myndefni og upplýsingum um skotárásina í íbúð í Álfholti

Lögregla leitar eftir myndefni og upplýsingum um skotárásina í íbúð í Álfholti

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar skotárás í Hafnarfirði á aðfangadag eins og fram hefur komið, en tilkynning um skotárásins barst kl. 22.06 á aðfangadagskvöld.

Tveir menn fóru þá inn í íbúð í Álfholti og hleyptu af nokkrum skotum, en mikil mildi þykir að enginn slasaðist.

Vegna málsins biðlar lögregla til bæði íbúa og forráðamanna fyrirtækja á Hvaleyrarholti að athuga með myndefni í öryggis- og eftirlitsmyndavélum á svæðinu og koma því til lögreglu ef svo ber undir.

Á þetta við um tímann frá kl. 21.30 til 22.30 á aðfangadagskvöld, en í þágu rannsóknarinnar er verið að leita upplýsinga um grunsamlegar mannaferðir.

Upplýsingum um málið, ef einhver býr yfir slíku, má sömuleiðis koma á framfæri í tölvupósti á netfangið r2a@lrh.is

Rannsókn málsins er í fullum gangi og er einn í haldi lögreglu vegna hennar, en sá var handtekinn fyrr í dag.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2