fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirTólfti bæjarfulltrúinn stígur til hliðar

Tólfti bæjarfulltrúinn stígur til hliðar

Halldór Árni Sveinsson hefur setið fleiri bæjarstjórnarfundi en nokkur annar í Hafnarfirði

Halldór Árni Sveinsson ákvað nýlega að hætta útsendingum frá bæjarstjórnar­fundum í Hafnarfirði, en þessi vegferð með bænum hófst fyrir 40 árum, þegar hann sá um útvarp á afmæli bæjarins á 75 ára afmælinu.

Þegar bæjarstjórnin hélt síðasta fund sinn fyrir jól var þessara starfsloka minnst og forseti bæjarstjórnar færði Halldóri Árni blómvönd frá bæjarstjórn og bæjarstjóri þakkaði honum góða þjónustu og samveru.

Halldór Árni með bæjarstjórn Hafnarfjarðar á síðsta fundi ársins 2023

Tólfti bæjarfulltrúinn

Stundum var gantast með að Halldór væri 12. bæjarfulltrúinn enda hafði enginn setið fundi bæjarstjórnar lengur en hann.

Halldór Árni með „lærling“ frá Rec Media sem tekur við útsendingunum.

Fjórða útvarpsleyfið

Fyrst voru fundirnir sendir út í útvarpi en Halldór fékk úthlutað fjórða leyfinu til útvarps og hóf reglulegar útsendingar í árslok 1987. Fyrsta útsendingin var úr bæjarráðssalnum þar sem samþykkt var fjárhagsáætlun fyrir árið 1988. Fljótlega hófust reglulegar útsendingar frá bæjarstjórnarfundum, og þegar Halldór hóf sjónvarpsútsendingar 1995 í félagi við Sæmund Stefánsson, Erling Krist­ensson og Lúðvík Geirsson jókst um­fjöllun um bæjarmálefni m.a. með vikulegum þætti, Miðvikudagsum­ræð­unni. Þá gerði hann yfir 100 þætti sem sýndir voru á sjónvarpsstöðinni Sýn 1992-1994, þar sem fjallað var um málefni tengd bænum og einnig hafn­firskum listamönnum.Í byrjun nýrrar aldar var byrjað að

streyma bæjarstjórnarfundunum og tóku nemendur í fjölmiðladeild Flensborgarskólans þátt í þróun þeirrar tækni, sem með tímanum leysti útvarps­útsendingarnar af hólmi.

Mikil heimildasöfnun

 

Halldór Árni í hljóð- og kvikmyndasafni sínu.

Upptökur frá bæjarstjórnarfundum eru aðeins brot af þeim upptökum sem Halldór Árni hefur gert í Hafnarfirði en hann hefur verið óþreytandi við að taka upp á hinum ýmsu viðburðum í bænum og á gríðarlegt safn sem nú er verið að skrá og færa yfir á stafrænt form.

Ávallt stutt í kímnina hjá Halldóri Árna.

Kveður sáttur

Halldór kveðst kveðja sáttur þetta skemmtilega hlutastarf, hann hafi persónulega kynnst öllum bæjar­fulltrúum á þessum langa ferli og sú vinátta sé honum efst í huga. Nú taki önnur verkefni við.

Halldóri Árna er margt til lista lagt, m.a. er hann afbragðs listmálari.

Aðspurður um minnisstæð atvik frá bæjarstjórnar­fundum segir hann margt spaugilegt auðvitað hafa gerst í hita leiksins. En sjálfsagt er ég bundinn trúnaði um margt af því, en um þetta verður allt hægt að lesa í „Endur­minningum úr bæjarstjórn“ sem kemur út eftir 50 ár í 4 bindum – þegar trúnaði af efninu hefur verið aflétt.

Frá síðasta fundinum sem Halldór Árni tók upp.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2