fbpx
Föstudagur, nóvember 15, 2024
target="_blank"
HeimFréttirUppfært - Prófessor í eldfjallafræði segir erfiðasta svæðið í framtíðinni verði Hafnarfjörður

Uppfært – Prófessor í eldfjallafræði segir erfiðasta svæðið í framtíðinni verði Hafnarfjörður

Verðum að fara að tengja þessa ógn inn í allt skipulag hjá okkur

Dr. Ármann Höskuldsson, prófessor í eldfjallafræði, sagði í viðtali á Stöð 2 um jarðeldana í Grindavík að önnur byggð í Reykjanesskaga gæti verið í hættu og að það hafi verið skoðað frá árinu 2021.

„Kannski erfiðasta svæðið í framtíðinni verður Hafnarfjörður,“ sagði Ármann. „En kosturinn er sá að við erum búin að sjá hvernig þetta virkar og það þýðir að við getum farið að undirbúa og hanna og gera ráð fyrir því hvernig við ætlum að bregðast við ef eitthvað fer að fara þar inn. Það er erfiðasta svæðið og ef þetta fer nú enn austar og fer að gjósa á Hengilssvæðinu líka, þá er Hveragerði komið inn í myndina og þá þarf að fara hugsa það hvernig við ætlum að leysa þau mál og þá er náttúrulega og þá er kannski stærra vandamál en er núna því þá er Hellisheiðavirkjun og Nesjavallavallvirkjun komnar í hættupakkann.“

Segir hann að við verðum að fara að tengja þessa ógn inn í allt skipulag hjá okkur.

Skýrði hann ekki nánar hvers vegna svæðið yrði það erfiðasta.

Uppfært:

Á þessu skjáskoti af þrívíddarkorti ÍSOR má sjá jarðlög í Hafnarfirði. Græni liturinn sýnir grágrýtisfláka en bleiki liturinn sýnir um 2400 ára hraun sem hrann úr Búrfelli og þekur vesturbæinn og stóran hluta Garðabæjar. Vestur af Hvaleyrinni má sjá Skúlatúnshraunið sem rann fyrir um 7000 árum en yfir það rann Hellnahraun árið 950 og er þar sem Vellirnir eru og rann það nær alveg að Ástjörn. Í Straumsvík rann svo Kapelluhraun 1151-1188. Heimild: jardfraedikort.is

..þar sem gosið hefur áður er nokkuð líklegt að aftur muni gjósa

Í svari við fyrirspurn Fjarðarfrétta sagði dr. Ármann að hraunbreiður vestast í Hafnarfirði beri það með sér að þar sé farvegur hrauna og að hættan sé mest vestast í Hafnarfirði.

Aðspurður hvort hann telji að það geti farið að gjósa í Trölladyngju eða enn þá nær: „Klárlega þar sem gosið hefur áður er nokkuð líklegt að aftur muni gjósa“.

Jarðfræðikort ÍSOR sýnir vel hraunstrauma í landi Hafnarfjarðar en mörg hraunin hafa runnið á sögulegum tíma.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2