fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimÍþróttirFrjálsarFH bikarmeistarar innanhúss í frjálsíþróttum

FH bikarmeistarar innanhúss í frjálsíþróttum

FH-ingar urðu í dag bikarmeistarar innanhúss í 18. Bikarkeppni FRÍ sem haldin var í Kaplakrika.

Liðið hlaut 92 stig og sigraði FH bæð í karla- og kvennakeppninni.

Breiðablik var í öðru sæti með 73 stig og ÍR í þriðja sæti með 69 stig.

Karlalið FH fékk 41 stig og kvennalið FH fékk 51 stig.

Þrjú mótsmet voru sett á mótinu. Erna Sóley Gunnarsdóttir, ÍR, setti mótsmet í kúluvarpi kvenna er hún kastaði kúlunni 16,62 m.

Júlía Kristín Jóhannesdóttir, Breiðablik, setti mótsmet í 60 m grindahlaupi kvenna er hún kom í mark á 8,59 sek. sem er aðeins þremur hundruðustu frá aldursflokkameti hennar í greininni.

Elías Óli Hilmarsson, FH, jafnaði mótsmetið í hástökki karla er hann stökk yfir 2 metra.

Sigrar FH-inga

  • Kolbeinn Höður Gunnarsson sigraði í 60 m hlaupi á 7,20 sek
  • Nils Fischer sigraði í 1500 m hlaupi á 4,04.17 mín (perónulegt met)
  • Sveit FH sigraði í 4x 200 m boðhlaupi karla á 1,32.62 mín
  • Elías Óli Hilmarsson sigraði í hástökki, stökk 2 metra (mótsmetsjöfnun)
  • Naomi Amanda Sedney sigraði í 60 m hlaupi á 7,56 sek.
  • Íris Anna Skúladóttir sigraði í 1500 m hlaupi á 4,43.47 mín
  • Sveit FH sigraði í 4x 400 m boðhlaupi kvenna á 1,44.84 mín (besti árangur)
  • María Helga Högnadóttir sigraði í stangarstökki kvenna, 3,10 m (persónulegt met)

Öll úrslit mótsins má sjá hér.

 

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2