fbpx
Fimmtudagur, júlí 18, 2024
HeimFréttirErla tekur við af formanni sem hefur setið í 33 ár

Erla tekur við af formanni sem hefur setið í 33 ár

Erla Björg nýr formaður BH og Hörður heiðursfélagi

Á aðalfundi Badmintonfélags Hafnarfjarðarfundinum í gærkvöldi var Erla Björg Hafsteinsdóttir kjörinn formaður. Það væri í sjálfu sér ekki mikil frétt nema fyrir það að hún var að taka við af formanni sem hafði setið óslitið í 33 ár!

Þetta var að sjálfsögðu Hörður Þorsteinsson sem á að baki meira en 35 ár í stjórnarstörfum fyrir félagið, þar af 33 sem formaður. Hefur hann stýrt félaginu af mikill lagni og festu svo eftir hefur verið tekið.

Í tilefni tímamótanna hjá Herði, sem nýlega tók við embætti gjaldkera ÍSÍ, voru honum færðar miklar þakkir fyrir frábær störf. Aðalbjörg Óladóttir, varaformaður Íþróttabandalags Hafnarfjarðar, veitti honum gullmerki ÍBH og færði honum kveðjur stjórnar bandalagsins. Kristján Daníelsson, formaður BSÍ, tók einnig til máls og þakkaði Herði fyrir vel unnin störf og gott samstarf en Hörður hefur þegar fengið gullmerki BSÍ. Þá tilkynnti Erla Björg, nýkjörinn formaður, að aðalstjórn BH hefði ákveðið að kjósa Hörð fyrsta Heiðursfélaga BH. Hún færði honum skjal þess efnis auk blómvandar og badmintonspaða þar sem hann sagðist í ávarpi sínu als ekki hættur að spila þó hann væri ekki lengur formaður. Þá fékk hann standandi lófaklapp frá fundarmönnum og mörg faðmlög.

Erla Björg Hafsteinsdóttir, sem tók við keflinu af Herði, er engin nýgræðingur enda hefur hún verið varaformaður félagsins um nokkurra ára skeið. Erla Björg er félagsmönnum vel kunnug enda sigursælasti leikmaður félagsins frá upphafi og mikill BH-ingur. Hún vann fyrsta Íslandsmeistaratitil félagsins í efsta flokki í badminton árið 2009 og þrjá titla eftir það, varð heimsmeistari öldunga 2019 auk fjölda annarra titla.

Aðrir stjórnarmenn en Hörður sitja áfram í stjórnum félagsins á nýju tímabili en nýr í stjórn badmintondeildar kom Sebastian Vignisson og nýr í aðalstjórn Kristján Arnór Kristjánsson.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2