fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirIðnaðarmannafélagið í Hafnarfirði ánafnar Tækniskólanum 38 milljónum kr.

Iðnaðarmannafélagið í Hafnarfirði ánafnar Tækniskólanum 38 milljónum kr.

Fyrsta eiginfjárframlag til nýbyggingar Tækniskólans kemur frá Iðnaðarmannafélaginu í Hafnarfirði

Iðnaðarmannafélagið í Hafnarfirði hefur ánafnað Tækniskólanum 38 milljónum króna og var samningur þess efnis undirritaður í Húsi atvinnulífsins.

Félagið leitaði liðsinnis Samtaka iðnaðarins við framkvæmdina.

Þeir fjármunir sem Iðnaðarmannafélagið í Hafnarfirði afhenti Tækniskólanum eru fyrsta eiginfjárframlag sem berst til skólans í þágu nýbyggingar skólans.

Tækniskólinn er nú starfræktur í níu byggingum víðs vegar um höfuðborgarsvæðið. Fyrirhugað er að sameina alla starfsemi skólans á einum stað í nýrri byggingu við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði.

Iðnaðarmannafélagið stofnað sama dag og Iðnskólinn í Hafnarfirði var stofnsettur

Iðnaðarmannafélagið í Hafnarfirði var stofnað 11. nóvember 1928 sama dag og sama ár og Iðnskólinn í Hafnarfirði var settur á fót. Iðnaðarmannafélaginu í Hafnarfirði hefur nú verið slitið. Félagið átti húseign að Hjallahrauni 8 og samþykkti stjórn félagsins að láta allar eignir félagsins renna til nýbyggingar Tækniskólans sem til stendur að reisa í Hafnarfirði.

ÁS fasteignasala sá um sölu á fasteign sem var í eigu Iðnaðarmannafélagsins og tók enga söluþóknun fyrir þannig að fjárframlagið til Tækniskólans gæti orðið hærra sem þeirri þóknun nemur.

Erling Jóhannesson, vélstjóri og fyrrum stjórnarmaður í Iðnaðarmannafélaginu í Hafnarfirði sagði við þetta tilefni: „Félagar í Iðnaðarmannafélaginu í Hafnarfirði lýsa ánægju sinni með að geta lagt lóð á vogarskálarnar við upphaf byggingar Tækniskólans í Hafnarfirði og þykir fjármunum þessum vel varið til eflingar iðn- og tæknináms. Við óskum Tækniskólanum alls velfarnaðar um ókomna tíð.“

Egill Jónsson, formaður Tækniskólans og byggingarnefndar skólans: „Við erum afskaplega þakklát Iðnaðarmannafélaginu í Hafnarfirði sem leggur fram fyrsta eiginfjárframlagið til nýs Tækniskóla. Það er bæði táknrænt og merkilegt og lagt fram af heilindum og myndarbrag.”

Hildur Ingvarsdóttir, skólameistari Tækniskólans: „Við tökum af auðmýkt við þessu höfðinglega framlagi sem okkur þykir afar vænt um. Við munum verja því vel við byggingu nýs Tækniskóla og tryggja að merkri sögu og framlagi Iðnaðarmannafélagsins í Hafnarfirði verði gerð góð skil í nýrri byggingu.“

 

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2