fbpx
Föstudagur, janúar 31, 2025
HeimFréttirFH er deildarmeistari í handbolta karla eftir sigur á Gróttu

FH er deildarmeistari í handbolta karla eftir sigur á Gróttu

Þegar ein umferð er eftir í úrvalsdeild karla í handknattleik er ljóst að FH er deildarmeistari.

Valur er þremur stigum á eftir FH í öðru sæti og getur því ekki náð FH að stigum en liðið tapaði gegn KA í næst síðustu umferðinni.

FH sigraði Gróttu örugglega á útivelli 29-22. Birgir Már Birgisson, Jóhannes Berg Andrason og Símon Michael Guðjónsson voru markahæstir fyrir FH, skoruðu 5 mörk hver. Daníel Freyr Andrésson varði 19 skot.

FH tekur á móti KA á heimavelli í síðasta leiknum á föstudaginn þar sem liðið fær væntanlega bikar í leikslok.

Þegar leiknar hafa verið 21 umferð hefur FH unnið 17 leiki, gert 1 jafntefli og tapað 3 leikjum, þar af tveimur í síðustu umferðunum gegn ÍBV og Haukum en einnig gegn Val í upphafi móts.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2