fbpx
Þriðjudagur, nóvember 5, 2024
target="_blank"
HeimFréttirAtvinnulífMarkaðstofan valdi Te og kaffi fyrirtæki ársins

Markaðstofan valdi Te og kaffi fyrirtæki ársins

Félagar í Markaðsstofu Hafnar­fjarðar, sem er hreyfi­afl fyrir hafnfirsk fyrirtæki, útnefndu sl. þriðjudag Te og kaffi hf. sem Fyrirtæki ársins í Hafnar­firði.

Með viðurkenningunni er ver­ið að heiðra fyrirtæki sem þótt hafa skarað fram úr á árinu við að efla atvinnulíf í Hafnar­firði og tekið þátt í að gera Hafnarfjörð að betra samfélagi með starfsemi sinni og athöfn­um.

Te & Kaffi er fjölskyldu­fyrirtæki sem var stofnað árið 1984. Vörumerkið hefur þróast með sífelldum nýjungum og vöruþróun auk þess sem fyrir­tækið rekur fjölda kaffihúsa. Lagt er mikið upp úr umhverfis­málum með sjálfbærni að leið­ar­ljósi. Strangt gæðaeftirlit er á öllu vinnsluferli kaffibaunanna og val á réttu hráefni. Markmið fyrirtækisins er að bjóða við­skiptavinum upp á besta kaffi sem völ er á, á sem umhverfis­vænastan hátt. Undanfarin ár hefur fyrirtækið haldið loftlags­bókhald og hefur fyrirtækið brugðist vel við því sem betur má fara til að stuðla að aukinni sjálfbærni, m.a. með umhverfis­vænni orkugjafa og niður­brjót­an­legum umbúðum.

Fimm fyrirtæki voru tilnefnd að þessu sinni og auk Te og Kaffis voru það Betri Stofan, H-Berg, Litla hönnunarbúðin og Sorgar­miðstöð.

Hlutverk og tilgangur Markaðsstofu Hafnarfjarðar er að efla samstarf atvinnulífs, bæjarfélagsins og annarra sem vilja stuðla að uppbyggingu innan Hafnarfjarðar með það að leiðarljósi að bæta ímynd Hafnarfjarðar og auka eftirspurn eftir hvers konar þjónustu og atvinnustarfsemi á svæðinu. Hlutverk markaðstofunnar er einnig að standa að fræðslu, efla tengslanet fyrirtækja í bænum og samstarfi þeirra á milli.

Greinin var birt í 4. tbl. Fjarðarfrétta, 11. apríl 2024

Frítt Fjarðarfrétta-app í símann þinn!

Hægt er að sækja app í þinn síma  í Play Store í Android símum og í Apps store í iOS símum. Frítt er að sækja appið og lesa Fjarðarfréttir!

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2