fbpx
Fimmtudagur, júlí 18, 2024
HeimÍþróttirBesti árangur Ís­lands frá upp­hafi á Norðurlandamóti í áhaldafimleikum!

Besti árangur Ís­lands frá upp­hafi á Norðurlandamóti í áhaldafimleikum!

Fimleikafélagið Björk átti keppendur í unglingalandsliði karla

Norðurlandamótið í áhaldafimleikum fór fram dagana 5.-7. apríl í Osló í Noregi.

Fimleikafélagið Björk átti keppendur í unglingalandsliði karla, þá Ara Frey Kristinsson, Stefán Mána Kárason og Lúkas Ara Ragnarsson.

Unglingalandsliðið í áhaldafimleikum sem hreppti brons. Lúkas Ari Ragnarsson, Sólon Sverrisson, Kári Pálmarson, Stefán Márni Karlsson og Ari Freyr Krist­ins­son – Ljósmynd: Fimleikasamband Íslands

Lúkas Ari vann til bronsverðlauna á tvíslá með frábærum æfingum, hann varð í 6. sæti á bogahesti og 5. sæti á hringjum.

Lúkas Ari Ragnarsson úr Björk

Stefán Máni sýndi frábærar æfingar á svifrá og var hársbreidd frá verðlaunum með þeirri æfingu, en endaði í 5. sæti.

Stefán Máni Kárason úr Björk
Ari Freyr Krist­ins­son úr Björk

Tekið verður á móti landsliðinu með viðhöfn í Bjarkaheimilinu í dag kl. 17.

Öll íslensku liðin höfðu unnið til verðlauna í liðakeppninni á laugardaginn. Konurnar urðu Norðurlandsmeistarar og karlalandsliðið vann brons.

Þetta var í fyrsta sinn sem karlalandsliðið vinnur verðlaun á Norðurlandamóti í áhaldsfimleikum.

Bæði lið Íslands í unglingaflokki á NM í Osló unnu einnig til verðlauna, stúlknaliðið varð í öðru sæti og drengjaliðið í þriðja sæti.

Ljósmyndir: Fimleikasamband Íslands.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2