fbpx
Laugardagur, nóvember 16, 2024
target="_blank"
HeimFréttirGuðrún Jóna fékk lýðheilsuverðlaunin

Guðrún Jóna fékk lýðheilsuverðlaunin

Íslensku lýðheilsuverkefnin voru afhent á Bessastöðum í annað sinn fyrir skömmu
Forseti afhenti Íslensku lýð­heilsu­verðlaunin í annað sinn við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Verðlaunin eru veitt í tveimur flokk­um fyrir mikilsvert framlag til eflingar lýðheilsu á Íslandi.
Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir, hjúkr­unar­fræðingur og fagstjóri Sorgar­miðstöðvar, hlaut verðlaunin í ein­staklingsflokki og afhenti forseti þau.

Í flokki starfsheilda varð Grunn­skólinn á Ísafirði fyrir valinu. Kristján Agnar Ingason tók við verðlaununum, sem Willum Þór Þórsson heil­brigðis­ráðherra afhenti.

Guðrún Jóna

Hafnfirðingurinn Guðrún Jóna Guð­laugsdóttir hjúkr­unar­fræðingur og fagstjóri Sorgar­mið­stöðvar, er hug­sjóna­manneskja með mikið baráttuþrek sem hefur barist fyrir því að opna umræðu um sjálfsvíg á opinberum vett­vangi.

Ásamt því hefur hún unnið í mörg ár í gegnum félagasamtök að forvörnum sjálfsvíga og stuðningi við aðstandendur þeirra sem falla fyrir eigin hendi.

Guðrún Jóna stýrir nú verkefnum Lífsbrúar, miðstöðvar sjálfsvígs­for­varna. Hún hefur aflað sér mikillar þekkingar á þessu sviði sem hún miðlar áfram af einstakri elju.

Grunnskólinn á Ísafirði

Grunnskólinn á Ísafirði hefur í 30 ár staðið fyrir fjallgönguverkefni fyrir alla árganga. Á hverju hausti fer hver bekkur í fjallgöngu sem hæfir þeirra getu innan Skutulsfjarðar. Við upphaf 10. bekkjar er farið í tveggja daga Horn­strandagöngu. Þannig hafa nem­endur, sem ljúka grunnskóla, gengið á öll helstu fjöll í nágrenni. Ferðirnar eru hugsaðar til þess að nemendur læri frá ungum aldri að njóta þess að ganga á fjöll í góðum félagsskap og kynnist fjölbreyttum möguleikum til útivistar í nærumhverfi sínu.

Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir tekur við verðlaununum úr hendi forseta Íslands. – Ljósm.: Anton Brink

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2