fbpx
Mánudagur, nóvember 25, 2024
target="_blank"
HeimFréttirPólitíkSkrattinn býr í smáatriðunum

Skrattinn býr í smáatriðunum

Jón Ingi Hákonarson skrifar

Síðustu tvö ár hefur meirihluti bæjar­stjórnar Hafnarfjarðar lofað sig í hæstu hæðir fyrir góðan og ábyrgan rekstur. Meirihlutinn hefur talið okkur trú um að afgangur af grunnrekstri bæjarins sé á þriðja hundrað milljónir króna bæði árin.

Staðreyndin er hins vegar sú að síðustu tvö ár hefur grunn­­rekstur bæjarins verið með versta móti. Bæði árin hefur hallinn numið í kringum 1,7 milljörðum króna. Uppsafnaður halli er því um 3,5 milljarðar króna. Þessi halli hefur verið falinn með því að lauma gatnagerðargjöldum inn í grunn­reksturinn og fegra þar með niður­stöðuna. Í mínum huga er þetta ekki samkvæmt lögum og reglum.

Tekjur bæjarins hafa verið með mesta móti undanfarin tvö ár sem stafar af mikilli lóðasölu og innheimtu gatna­gerðargjalda. Hvorugt á að standa undir grunnrekstri heldur standa undir fjárfestingu í nauðsynlegum innviðum sem bærinn þarf að ráðast í vegna stækk­unar.
Framsetning ársreikningsins er með þeim hætti að verið er að rugla saman nokkrum ólíkum hlutum til þess að slá ryki í augu íbúa.

Raunveruleikinn er því miður sá að undanfarin ár hefur bærinn fjármagnað halla­­rekstur með lántökum. Einnig hafa afborganir af eldri lánum verið fjármagnaðar með nýjum lánum. Slíkt á ekkert skylt við ábyrga fjár­mála­stjórnun.

Því miður þarf að rýna ársreikninginn vel og átta sig á þeim bakfærslum sem þar eru gerðar til að sjá raunstöðuna. En skrattinn býr í smáa letrinu og því þarf að lúslesa þennan reikning til að átta sig á stöðunni.

Ég tel það vera skyldu mína að upp­lýsa íbúa um þetta misræmi og hvet þig lesandi góður að kynna þér málið.

Það er nefnilega þannig að ekki er hægt að breyta því sem ekki er uppi á borðum. Ef meirihlutinn trúir því að grunnreksturinn sé í blóma, þegar hann er það ekki, þá er ekki mikil von til þess að farið verði í nauðsynlegar aðgerðir til að ná jafnvægi í rekstrinum.

Jón Ingi Hákonarson
oddviti Viðreisnar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2