Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti í dag að kaupa húseignina Fornubúðir 1 til að rýma fyrir væntanlegri skólabyggingu Tækniskólans.
Húsið er 840 m² að grunnfleti með 1.104 m² birt flatarmál alls, á 2.457 m² lóð.
Umsamið kaupverð var 425 milljónir kr. en fasteignamat hússins er 315,8 milljónir kr. og fram kom á bæjarstjórnarfundinum að í kaupunum fælust lóðarréttindi en áður hafði komið fram að lóðarleigusamningurinn rann út árið 2022.
Ekki er gert ráð fyrir þessum kaupum í fjárhagsáætlun en greiða á 110 milljónir kr. við undirritun sem áætluð eru í haust (bæjarstjóri sagði reyndar 110 þúsund kr. á fundinum).
Er talið að þessi kaup verði fyrirmynd að öðrum uppkaupum á svæðinu.