fbpx
Laugardagur, nóvember 16, 2024
target="_blank"
HeimFréttirStuttmynd sem er afrakstur Skapandi sumarstarfa í Hafnarfirði

Stuttmynd sem er afrakstur Skapandi sumarstarfa í Hafnarfirði

Ný stuttmynd eftir tvo unga höfunda

Stuttmyndin TÓI var frumsýnd í Smárabíói í síðustu viku en hún er um 12 ára stúlku, Árúnu og viðburðaríka sumarið hennar þegar hún kynnist tröllinu Tóa.

Stuttmyndin TÓI er um 12 ára stúlkuna Árúnu og viðburðaríka sumarið hennar þegar hún kynnist tröllinu Tóa. Árún og Tói lenda í ýmis ævintýrum saman og kynnast þar á meðal huldukonu á ferðum sínum.

Annar höfundanna er Hafnfirðingurinn Reyn­ir Snær Skarphéðinsson, ungur kvik­­myndagerðarmaður sem er leikstjóri og framleiðandi á stuttmyndinni. Hann lauk nýlega námi sínu úr Borgarholtsskóla af kvikmynda­gerðar­braut þar sem að hann leikstýrði stuttmyndinni „Blóð­hefnd“ sem byggði á 17. aldar víkinga­sögunni Amlóða-sögu. Frá og með haustinu mun Reynir stunda nám í Kvik­myndafræði við Háskóla Íslands.

Reynir Snær Skarphéðinsson og Jun Gunnar Lee Egils­son ásamt Tóa.

Hinn höfundurinn er suður-kóreski Kópavogsbúinn, Jun Gunnar Lee Egils­son, nemi í kvikmyndagerð við Lista­háskóla Íslands sem er leikstjóri, handritshöfundur og framleiðandi á stuttmyndinni. Hann lauk námi úr Borgarholtsskóla árið 2022, og hefur síðan þá leikstýrt fjölda stuttmynda.

Myndin er tekin í Hafnarfirði og í upplandi Hafnarfjarðar.

Skapandi sumarstörf voru endurvakin sumarið 2021 í samstarfi við ungmenna­húsið Hamarinn, en Skapandi sumarstörf hafði verið starfrækt sumarið 2017 fyrir hópa og einstaklinga á aldrinum 18-25 ára. Valdir hópar fengu tækifæri til að starfa við ýmis skapandi verkefni á ýmsum sviðum lista sem einnig myndu lífga upp á mannlífið í bænum. Var starfsemin rekin af Vinnuskóla Hafnar­fjarðar og er Klara Ósk Elíasdóttir verkefnastýra Skapandi sumarstarfa.

Í ár eru sjö fjölbreyttir hópar og einstaklingar sem starfa á vegum skapandi sumarstarfa.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2