Góð staða er á leikskólum bæjarins fyrir veturinn skv. tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ.
Öll börn sem fædd eru í maí 2023 og eldri hafa fengið pláss á leikskólum Hafnarfjarðarbæjar í haust. Stöður í leikskólum bæjarins eru nær fullmannaðar. Þá segir í tilkynningunni að haustið fari vel af stað með breyttum leikskóladegi.
Hafnarfjarðarbær hefur innleitt breytingar á leikskóladegi barnanna sem gefa færi á styttri viðveru en um leið sömu umönnun og kennslu. Foreldrar geta lækkað leikskólagjöldin um allt að 30%. Enn sem fyrr geta þó foreldrar fengið pláss fyrir börnin sín fullan leikskóladag þurfi þeir þess – án þess að gjöld hækki frá því sem var.
Breytt skipulag leikskóladagsins
Nýtt skipulag fyrir leikskóladaginn í Hafnarfirði tók gildi frá og með 1. september. Starfsemi innan leikskóladagsins verður nú tvíþætt með fagstarfi og frjálsum tíma. Markvisst fagstarf fer fram frá kl. 9-15 á daginn alla virka daga. Frjáls tími og leikstundir frá 7:30-9 og eftir kl. 15 á daginn.
Leikskóladagatalið verður 180 dagar og aðrir dagar verða sérstakir skráningardagar, þ.e. að skrá þarf börnin sérstaklega ef nýta á þá daga.
- Tveir dagar í október þegar vetrarfrí er í grunnskólum Hafnarfjarðar
- Frá og með 21. desember til og með 2. janúar
- Tveir dagar í febrúar þegar vetrarfrí er í grunnskólum Hafnarfjarðar
- Þrír dagar í dymbilviku fyrir páska
- Frá og með 10. júní – 10. ágúst
- Börn taka fjögurra vikna samfellt í sumarfrí yfir sumartímann
Breytingarnar á leikskóladeginum eru sagðar hentugar fjölskyldum og hjálpi sveitarfélaginu að halda öflugu fagfólki í starfi og fá fleiri fagmenntuð til starfa.
„Með skipulagðri skiptingu á leikskóladeginum er enn líklegra að starfskraftar fagfólks í leikskólum nýtist betur með börnum. Ljóst er að þessar breytingar hafa orðið til þess að störf innan leikskólanna þykja eftirsóknarverðari og ráðningar hafa gengið betur en oft áður,“ segir í tilkynningunni.
Lækkun leikskólagjalda með styttri viðveru
Leikskólagjöld fyrir 30 stunda dvöl og skemur á viku lækka umtalsvert eða allt að 30%. Gjöld fyrir 40 klukkustunda dvöl á viku verða óbreytt.
Dæmi: Frá og með 1. september 2024 verða mánaðargjöld fyrir 40 stundir á viku kr. 41.042.- og fyrir 30 stundir á viku kr. 19.962.- Munurinn er kr. 21.080.- á mánuði eða kr. 231.880.- á ári miðað við ellefu mánuði og einn mánuð í sumarfrí.
Eftir því sem dvalarstundum fækkar þá lækka gjöldin eins og sjá má hér að ofan þar sem gjöldin eru með fæðisgjaldi.
Systkinaafsláttur, tekjutengdur afsláttur og afsláttur vegna andláts maka eða skyndilegrar örorku. Sjá nánar hér