Fanný Lísa Hevesi var gestur móður sinnar, Antoníu Hevesi, píanóleikara og listræns stjórnanda á vel sóttum hádegistónleikum Hafnarborgar í síðustu viku.
Fanný Lísa, sem er uppalin í Hafnarfirði, er nýútskrifuð úr Performance Preparation Academy í Bretlandi með BA-gráðu í söngleik.
Hún hóf tónlistarnám sitt í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar en lærði svo söng í Söngskóla Sigurðar Demetz. Hún útskrifaðist með framhaldspróf í klassískum söng með Sigrúnu Hjálmtýsdóttur sem kennara en fyrir það lærði hún söngleikjasöng hjá Valgerði Guðnadóttur og Þór Breiðfjörð. Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum verkum og var meðlimur í barnakór Íslensku óperunnar þar sem móðir hennar var æfingapíanisti í langan tíma.
Þær mæðgur fluttu óperuleg söngleikjalög og ýmiss konar óperuskotið og óperutengt efni.
Á gráu svæði
Yfirskrift tónleikanna var „Mitt á milli – á gráu svæði“.
Fanný Lísa heillaði tónleikagesti með hressilegri framkomu og tærum söng og sem dæmi um ánægju gesta þá mátti sjá óperusöngkonuna Elínu Ósk Óskarsdóttur standa upp og klappa vel og lengi eftir eitt lagið.
Eigum við örugglega eftir að heyra meira frá þessari efnilegu söngkonu.