fbpx
Fimmtudagur, janúar 30, 2025
HeimFréttirÁhersla lögð á óhefðbundin tjáskipti fatlaðra hjá Hæfingarstöðinni á Bæjarhrauni

Áhersla lögð á óhefðbundin tjáskipti fatlaðra hjá Hæfingarstöðinni á Bæjarhrauni

Hæfingarstöðin á Bæjarhrauni hefur verið með í að þróa samskiptamáta og hefur verið í erlendu samstarfi með þátttöku fatlaðra

Hæfingarstöð fyrir fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir hefur verið starfrækt frá árinu 1991 að Bæjarhrauni 2 hér í bæ.

Fyrstu 20 árin var hún starfrækt af ríkinu en við flutning málaflokks fatlaðs fólks frá ríki til sveitarfélaga árið 2011 hefur hún verið starfrækt af Hafnar­fjarðarbæ.

Áhersla á tjáskipti

Halla Harpa Stefánsdóttir

Halla Harpa Stefánsdóttir er forstöðu­maður Hæfingarstöðvarinnar og segir hún að frá upphafi hafi ætíð verið lögð áhersla á þjálfun í notkun óhefðbundinna tjáskipta samhliða notkun á sértækum tjáskiptatölvum. Segir hún að einnig sé lögð áhersla á skynörvandi umhverfi.

Erlent samstarf

„Erlent samstarf er talsvert m.a. alþjóð­­leg samvinna varðandi þróun Bliss­­tungu­málsins og samstarf í gegn­um Erasmus+ sem er á vegum Evrópu­sambandsins og Nordplus sam­takanna,“ segir Halla. „Þátttaka þjón­ustu­­notenda er mikil í þessu erlenda samstarfi og hafa þau notið þess mikið að ferðast erlendis ásamt starfsfólki“.

Myndband frá Erasmus+ verkefninu var sýnt.

Kynning og kaffisamsæti

Þann 5. sept. s.l. var Hæfingarstöðin með kaffisamsæti í Hafnarborg þar sem um 50 manns mættu. Þar var starfsemi Hæfingarstöðvarinnar og þátttaka í Erasmus+ verkefni sem Belgía og Litháen tóku einnig þátt í.

Táknin kynnt á einfaldan máta

Heiti verkefnisins var „Empowering life“ eða „Valdeflandi líf.“ Að sögn Höllu var tilgangurinn með verkefninu að deila árangursríkri vinnu við stuðning við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og þá sem takast á við geðrænar áskoranir.

Tölvur og hugbúnaður mikilvægur við samskipti

„Við sýndum tæknibúnaðinn sem notaður er af þjónustunotendum og gátu gestir prófað að nota Tobii Dynavox tölvur með Communicator5 og TD Snap hugbúnað. Einnig fengu þeir tækifæri til að kynnast augnstýringu á tölvum, mismunandi snertiskjám og útprentuðum tjáskiptatöflum.

Við kynntum aðal samstarfsaðila okkar þ.e. Öryggismiðstöðina og Tobii Dynavox auk þess sem við deildum vefsíðum varðandi þær aðferðir og nálganir sem við notum í dagleg starfi okkar,” segir Halla um þessa vel heppnuðu athöfn sem varpaði ljósi á þá öflugu starfsemi sem fer fram á Hæfingarstöðinni.

Gestir sáu einnig kynningarmyndband frá þessu Erasmus+ verkefni sem staðið hefur yfir í tvö ár en kaffisamsætið í Hafnarborg setti endalok á verkefnið.

Bliss táknmál

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2