fbpx
Laugardagur, nóvember 16, 2024
target="_blank"
HeimFréttirFjölmennt á fundi um öryggi og líðan ungs fólks

Fjölmennt á fundi um öryggi og líðan ungs fólks

Næsti fundur í fundarröðinni Við erum þorpið verður 15. október

„Ef við foreldrar, skólarnir og Hafnarfjarðarbær vinnum saman af heilindum getum við skapað umhverfi þar sem börnin okkar njóta vellíðunar, öryggis og trausts námsumhverfis,“ sagði Vala Steinsdóttir nýkjörin formaður Foreldraráðs Hafnarfjarðar á opnum fundi í Bæjarbíói í gær. „Lykillinn að velgengni er einfaldur: samvinna, einlægur áhugi og vilji til að standa saman.“

Góð líðan forsenda þess að blómstra

Vel var mætt og sóttu um 100 manns á fund í fundarröðinni Við erum þorpið sem bar yfirskriftina: Framtíðin er björt ef við viljum það öll.

„Við erum þorpið“ er fundaröð Hafnarfjarðarbæjar
um málefni barna og ungmenna, líðan þeirra og öryggi

Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri setti fundinn og benti á að markmið fundaraðarinnar væri að finna nýjar leiðir og hugmyndir til að bæta líðan og öryggi barna og ungmenna í bænum. „Við þurfum að spyrja; hvað við getum gert sem samfélag og þorp, hvernig nálgumst við hvert annað, unga fólkið okkar og samaldra?“

Rósa sagði góða líðan ungmenna forsendu þess að þau geti blómstrað í samfélaginu. „Óæskilega hegðunin sem við sjáum, kemur vegna vanlíðan sem brýst út. Þá er það þorpið sem umkringir börnin og ungmennin; foreldrarnir, íþróttafélögin og vinirnir sem þurfa að taka utan um hvert annað og hlúa að þeim sem líður ekki nógu vel.“

Fulltrúar frá ungmennum, lögreglu, skólasamfélaginu og sveitarfélaginu voru í pallborði og brugðust við vangaveltum úr sal. Fundinum var stýrt af Evu Mattadóttur markþjálfa.

Þurfum að vinna af einlægum áhuga

Vala benti á að foreldraráðið væri samstarfsvettvangur foreldrafélaga í grunnskólum Hafnarfjarðar. Félagið ætti fulltrúa í lykilráðum sveitarfélagsins. „En samvinna þarf að byggja á einlægum áhuga,“ sagði hún.

„Við þurfum virkilega að setja okkur inn í líðan barnanna. Við þurfum að hlusta á þau, taka þátt í umræðum með þeim og skapa rými þar sem þau finna að þau séu metin að verðleikum. Opin og regluleg samskipti á milli foreldra og skóla eru lykillinn – þar getum við fagnað sigrum, stórum sem smáum, og leyst úr vandamálum þegar þau koma upp,“ sagði hún og hvatti fleiri foreldra til að vera virkari.

Það er oft þannig að tiltölulega fáir foreldrar, oft þeir sömu, taka þátt í starfi foreldrafélaga. Þetta er áskorun sem flest foreldrafélög kannast við. En ef við viljum sjá breytingar, hvort sem það er í betri skólabrag eða auknu öryggi barna okkar, þá verðum við foreldrar að vera hluti af lausninni. Við getum ekki setið hjá og treyst á að aðrir taki frumkvæðið – við verðum öll að leggja okkar af mörkum,“ sagði hún.

Salurinn tók virkan þátt í fundinum

Þátttakendur í fundinum tjáðu sig og mátti víða heyra hvatningu um að fullorðna fólkið mætti vera virkari með börnum sínu. Þó þyrfti að  gefa ungu fólki tækifæri til að efla sjálfstraust og málstað hvors annars. Fullorðnir ættu svo að fá að stíga inn í erfiðum aðstæðum ef þörf krefur. Foreldri í sal lagði áherslu á mikilvægi þess að þekkja foreldrana í kring. Þeir ættu að hugsa um öll börn sem sín eigin.

Hvað getum við gert?

Umræðan fór víða. Einelti, kynja- og kynfræðslu. Rætt var um ólíka menningarheima og ólíkar aðstæður inni á heimilum. Orð sem fest voru á blað og stefnt er á að vinna úr. Spurt var hvað við sem samfélag gætum gert til að styðja við öryggi og vellíðan barnanna. Svörin voru margvísleg og sjá má afraksturinn hér:

51 svar

Lokaorð formanns foreldraráðsins var: „Við getum byggt upp þorpið sem við getum öll verið stolt af.“

Næsti fundur í fundarröðinni Við erum þorpið verður í Bæjarbíói 15. október kl. 20 þar sem  gefin verða ráð til að bæta líðan barna.

 


Frétt áður birt á vef Hafnarfjarðarbæjar.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2