Kjörstjórn Kennarasambands Íslands kynnti í dag niðurstöður atkvæðagreiðslna um verkfallsaðgerðir í lok mánaðar.
Meirihluti í þeim átta skólum, þar sem kosning fór fram, sagði já við fyrirhuguðum verkföllum. Áformað er að aðgerðir hefjist 29. október.
Atkvæði voru greidd í fjórum leikskólum, þremur grunnskólum og einum framhaldsskóla. Atkvæðisrétt höfðu félagsmenn aðildarfélaga Kennarasambandsins sem starfa í viðkomandi skólum og taka laun samkvæmt kjarasamningum KÍ.
Þetta voru félagsmenn í Félagi grunnskólakennara, Félagi leikskólakennara, Félagi framhaldsskólakennara, Félagi stjórnenda í framhaldsskólum og Skólastjórafélagi Íslands.
Verkfall í Áslandsskóla
Samþykkt hafa verið verkföll í eftirtöldum grunnskólum:
- Áslandsskóli í Hafnarfirði
- Laugalækjarskóli í Reykjavík
- Lundarskóli á Akureyri
Verkföll í þessum skólum skella á 29. október og standa til 22. nóvember, hafi samningar ekki náðst.
Þetta þýðir að verkföll hafa verið boðuð í eftirtöldum leikskólum:
- Leikskóli Seltjarnarness
- Leikskólinn Holt í Reykjanesbæ
- Leikskólinn Drafnarsteinn í Reykjavík
- Leikskólinn Ársalir á Sauðárkróki
Verkfallsaðgerðir í leikskólum hefjast 29. október og eru ótímabundnar, hafi kjarasamningar ekki náðst.