fbpx
Þriðjudagur, október 15, 2024
target="_blank"
HeimFréttirAtvinnulífRíkisstjórnin sprungin – Kosningar 30. nóvember?

Ríkisstjórnin sprungin – Kosningar 30. nóvember?

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hefur tilkynnt að ríkisstjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna hafi verið slitið.

Hann hefur þó ekki beðist lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt en mun hitta forseta Íslands kl. 9 í fyrramálið þar sem framhaldið verður rætt.

Verða kosningar 30. nóvember ef vilji Bjarna nær fram að ganga og forseti Íslands samþykkir það.

Sagði hann á blaðamannafundinum að hann myndi leggja til við for­menn hinna stjórn­ar­flokk­anna að boðað verði til kosn­inga og þing rofið en að rík­is­stjórn­in haldi umboði sínu til kosn­inga. „Ef um það verður ekki sátt þá mun ég biðjast lausn­ar og þá get­um við eft­ir at­vik­um fengið starf­stjórn að beiðni for­set­ans,“ sagði Bjarni.

Kom þessi ákvörðum mörgum á óvart en frekar var búist við að kosningar yrðu næsta vor.

Svandísi Svavarsdóttur formanni VG kom þetta á óvart og sagði hún að ekkert hafði bent til þessa þegar formenn flokkanna fundaði í gær.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2