Yfir 100 börn og ungmenni stíga á stokk í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar á sunnudaginn og flytja fjölbreytta tónlist frá barokktímanum á fjölskyldutónleikum í félagi við Kammerhópinn ReykjavíkBarokk.
Tónleikarnir eru sannkallað ferðalag um hljóðheim barokksins þar sem áheyrendur fá að heyra í mörgum spennandi hljóðfærum, 75 barna kór, einleikurum, einsöngvurum og samspilshópum. Tónleikarnir hefjast á Torginu í Tónlistarskólanum, færast svo yfir í Hásali og enda í Hafnarfjarðarkirkju.
Tónleikarnir hefjast kl. 15 og er aðgangur ókeypis og öllum opnir.
Fram koma:
- Kammerhópurinn ReykjavíkBarokk
- Nemendur úr Tónlistarskóla Hafnarfjarðar
- Kór Setbergsskóla
- Barnakór Hafnarfjarðarkirkju
- Drengjakór Reykjavíkur
- Orgelkrakkar Tónskóla Þjóðkirkjunnar
Tónleikarnir eru unnir í samstarfi við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og Hafnarfjarðarkirkju.
Verkefnið Krakkabarokk á ferð og flugi er styrkt af Barnamenningarsjóði.