fbpx
Fimmtudagur, janúar 30, 2025
HeimÁ döfinniGuðmundur Karl — Gullhjarta og fjandsemi

Guðmundur Karl — Gullhjarta og fjandsemi

Guðmundur Karl Eiríksson baritónsöngvari verður gestur Antoníu Hevesi á hádegistónleikum í Hafnarborg á þriðjudaginn, 4. febrúar.

Á efnisskrá tónleikanna, sem bera yfirskriftina „Gullhjarta og fjandsemi“, verða vel valdar aríur úr óperum eftir ítölsku tónskáldin Donizetti og Verdi.

Guðmundur Karl Eiríksson lauk framhaldsprófi í söng frá Söngskóla Reykjavíkur þar sem hann lærði hjá Garðari Thor Cortes. Einnig stundaði hann nám við Söngskóla Sigurðar Demetz undir leiðsögn Kristjáns Jóhannssonar. Hann lauk svo diplómanámi á meistarastigi á Ítalíu undir leiðsögn barítónsins Renato Bruson frá Accademia Renato Bruson. Guðmundur hefur komið fram á fjölda tónleika hérlendis sem og á Ítalíu. Þá hefur hann einnig tekið þátt í óperuuppfærslum en hann fór til að mynda með hlutverk Schaunard úr La bohéme á Rimini, Ítalíu, undir stjórn Joseph Rescigno. Einnig fór hann með hlutverk Þórs í Þrymskviðu eftir Jón Ásgeirsson á Óperudögum í Reykjavík árið 2018.

Antonía Hevesi, píanóleikari og listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar, hefur frá upphafi verið listrænn stjórnandi hádegistónleika í Hafnarborg, sem hafa verið fastur liður í dagskrá safnsins síðan 2003. Þar hefur Antonía fengið til liðs með sér marga af fremstu söngvurum landsins en markmiðið með tónleikunum að veita gestum tækifæri til að njóta lifandi tónlistarflutnings í góðu tómi. Þá fara hádegistónleikarnir að jafnaði fram fyrsta þriðjudag hvers mánaðar yfir vetrartímann.

Tónleikarnir hefjast kl. 12 og standa yfir í um hálfa klukkustund.
Aðgangur er ókeypis.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2