Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum í gær kauptilboð í stærstan hluta eignarinnar Óseyrarbraut 2, húsnæði Kænunnar við smábátahöfnina.
Kaupverðið er 265 milljónir kr. fyrir 324 m² húsnæði sem stendur á 2.363 m² leigulóð. Skv. heimildum Fjarðarfrétta er ekki aðeins greitt fyrir húsnæðið heldur er einnig tekið tillit til þess að verið er að kaupa út starfsemi í fullum rekstri.
Fasteignamat er eignarhlutans er skv. Fasteignaskrá 63,2 milljónir kr. þar af er lóðamat 11 milljónir kr. og brunabótamat þess er 139,25 milljónir kr.
Kauptilboð þetta er háð þeim fyrirvara að þinglýstir eigendur eignarhluta 0102 samþykki með óafturkræfum hætti kauptilboð Hafnarfjarðarbæjar innan þriggja mánaða frá undirritun þessa tilboðs. Það rými er 141 m² að stærð og fasteignamat þess er 29,5 milljónir kr. og brunabótamat þess er 60,8 milljónir kr.
Keypt til niðurrifs
Kaupir Hafnarfjarðarbær húsið til niðurrifs til að rýma fyrir byggingu Tækniskólans á svæðinu. Hafnarfjarðarbær þarf að kaupa fleiri eignir til niðurrifs en reiknað er með að húsnæði Kænunnar verði síðasta húsið sem verður rifið.
Afhending eignarinnar er 1. desember 2028 en fram að þeim tíma hefur Matbær ehf. sem rekur Kænuna fullt umráð yfir eigninni.
Meðaðsókn í Kænuna á liðnum árum
Oddsteinn Gíslason, eigandi Matbæjar, sagði í samtali við Fjarðarfréttir að rekstri Kænunnar verði hætt við afhendingu húsnæðisins. Hann hafi leitað að hentugu húsnæði en ekki fundið neitt sem hentar. Segir hann rekstur Kænunnar hafi gengið gríðarleg vel síðustu ár og hafi metfjöldi matargesta komið í Kænuna á síðasta ári.