Sundfólk úr Sundfélagi Hafnarfjarðar, ungir sem aldnir tóku þátt í árlegu jólasundmóti félagsins, sennilega skemmtilegasta sundmóti hvers árs. Keppendur voru rúmlega 250 og syntu þau yngstu án tímatöku og voru þau sem aðrir hvött vel áfram af fjölmörgum áhorfendum í Ásvallalaug.
![Ungu krakkarnir sýndu flotta takta í flugsundinu.](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/2016/12/SH-jólamót-151-2-1024x683.jpg)
Þjálfarar og starfsfólk var í jólaklæðnaði og gleðin var í fyrirrúmi. Mótinu lauk svo með einu allsherjar boðsundi þar sem 80 keppendur kepptu á 8 brautum. Syntu saman ungir sem aldnir sundmenn og fékk sundfólkið ekki að vita sundaðferðina fyrr en rétt áður en ræst var. Úr varð hin besta skemmtun og góður endir á skemmtilegu sundmóti þessa frækna sundfélags.
Fleiri myndir má sjá á Facebook síðu Fjarðarfrétta.