fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttirMenning og mannlífFramlag til menningarmála dregst saman

Framlag til menningarmála dregst saman

Aðeins áætlað að verja 2% af skatttekjum Hafnarfjarðar til menningarmála

Í nýsamþykktri fjárhagsáætlun Hafn­ar­fjarðarbæjar fyrir árið 2017 er gert ráð fyrir að 406,6 milljónum króna verði varði til menningarmála sem er 2% af áætluðum skatttekjum.
Að meðaltali hefur bæjarfélagið nýtt 2,52% af skatttekjum til menningarmála á síð­ustu 8 árum. Lægst var hlutfallið árið 2013, 2,15% en hæst árið 2008, 3,15%.

Væri framlagið í takt við meðal­hlut­fall af skatttekjum síðustu 8 ára væri gert ráð fyrir 512,4 millj. kr. til menn­ingarmála eða 105,8 millj. kr. meira en nú.

Akureyringar settu 350 milljón kr. meira í menningarmálin!

Á Akureyri búa um 18.400 manns eða um 10.000 færri en í Hafnarfirði. Samt lögðu Akureyringar 726,5 millj. kr. til menningarmála á sama tíma og Hafnarfjarðarbær lagði 376 millj. kr. Hefur þá verið tekið tillit til tekna og styrkja sem eru mun hærri á Akureyri. Á meðan Akureyri leggur til 39.604 kr. á hvern íbúa til menningarmála þá leggur Hafnarfjarðarbær aðeins 13.336 kr. á hvern íbúa.

Bókasafnið fær mest

Bókasafn Hafnarfjarðar er sú menn­ingar­stofnun sem hefur hæstar sértekjur. Samt er gert ráð fyrir að leggja 170 millj­ónir kr. til safnsins eða um 42% af öllu ráðstöfunarfé til menningarmála. Alls koma um 130 þúsund gestir á ári í bókasafnið og fá lánaðar 230 þúsund einingar. Er þetta um 15% fækkun á útlánum frá 2010 en þau hafa verið stöðug síðustu ár.

Alls fara 103 millj. kr. til Hafnarborgar á næsta ári eða um fjórðungur af öllu því fé sem ráðstafað er til menningar­mála. Í Hafnarborg komu um 18.700 gestir á síðasta ári og þar af um 5.300 á tónleika og aðra viðburði.

Áætlað er að 64 millj. kr. fari í rekstur Byggðasafnsins eða tæp 16%.

20 milljónir kr. greiðast til Gaflara­leik­hússins skv. samningi eða um 4,9%.

12 milljónir kr. eru áætlaðar til Jóla­þorpsins eða tæp 3%.

Að auki er gert ráð fyrir að 21 millj. kr. til atvinnu- og ferðamála sem Markaðsstofa Hafn­ar­fjarðar sinnir að hluta og fær 10 milljónir fyrir skv. samningi. (uppfært 16.12.)

Ekki er skil­merkilega gerð grein fyrir þeim 38 milljónum sem eftir standa í greinargerð með fjár­hags­áætluninni.

Úrelt erindisbréf

Menningar- og ferðamálanefnd fer með umsjón menningarmála í Hafnar­firði í umboði bæjarráðs. Skv. erindis­bréfi starfar hún með menningar- og ferðamálafulltrúa en það starf hefur verið lagt niður. Erindisbréfið hefur ekki verið uppfært en nú starfar það undir bæjarráði en ekki fjölskylduráði eins og þar kemur fram. Nefndin starfar nú með sviðsstjóra stjórnsýslusviðs en einnig með safnstjóra Hafnarborgar sem fer nú með hluta af málefnum menningarmála til viðbótar við starf­semi Hafnarborgar og forstöðumanni Markaðsstofu Hafnarfjarðar.

Sjá nánar í Fjarðarfréttum sem dreift var í hús í gær.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2