Mjög harður árekstur varð á Reykjanesbraut við brúna yfir Strandgötu á níunda tímanum í morgun. Tveir fulllestaðir malarflutningabílar voru á leið í austurátt en frásögnum ber ekki saman um hvað gerst hafi. Mbl.is greinir frá því að fólksbifreið sem kom úr vesturátt hafi farið yfir á öfugan vegarhelming og í veg fyrir flutningabílana en DV hefur það eftir vitni að annar flutningabíllinn hafi farið yfir á öfugan vegarhelming og í veg fyrir fólksbifreið sem kom úr vesturátt.
Skv. upplýsingum lögreglu er talið að BMW bifreið sem var á leið í vesturátt hafi farið í veg fyrir og skollið á malarflutningabíl sem við það fer yfir á öfugan vegarhelming og skellur á rauðum sportbíl. Hinn malarflutningabíllinn skellur á BMW bifreiðinni og þeytir henni út af.
![Fólksbifreið sem kom úr austurátt lenti framan á malarflutningabifreið](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/2017/01/Arekstur_Reykjanesbraut_1701-18-1024x682.jpg)
Fólksbifreiðin sem var af BMW gerð endaði inni á fráreininni við Strandgötu og sjá mátti að malarflutningabílarnir stöðvuðust í um 90 m fjarlægð frá fólksbílnum og lenti annar fólksbíll framan á öðrum malarflutningabílnum sem endaði utan í vegriði á röngum vegarhelmingi.
![BMW bifreiðn var mjög illa farin og endaði inn á frárein.](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/2017/01/Arekstur_Reykjanesbraut_1701-76-1024x682.jpg)
Þrír voru fluttir á spítala og var einn þeirra talinn alvarlega slasaður og án meðvitundar.
![Sprungið var framdekk á bílnum og afturfelga illa farin og dekk vindlaust. Þessi bifreið skall á BMW bifreiðinni eftir að hinn malarflutningabíllinn hafði skollið á henni.](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/2017/01/Arekstur_Reykjanesbraut_1701-04-1024x682.jpg)
Reykjanesbrautinni var lokað í báðar áttir og líkur á að hún yrði lokuð í einhvern tíma enda mikið drasl á götunni, annar malarflutningabíllinn með sprungið framdekk og tveir óökufærir bílar.
![Horft til vesturs yfir slysstaðinn.](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/2017/01/Arekstur_Reykjanesbraut_1701-32-1024x682.jpg)
![BMW bifreiðin](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/2017/01/Arekstur_Reykjanesbraut_1701-70-1024x682.jpg)
![Malarflutningabifreið sem var á leið í austurátt](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/2017/01/Arekstur_Reykjanesbraut_1701-44-1024x682.jpg)