Vinnuskóli Hafnarfjarðar tók fyrir helgi í fyrsta sinn á móti Grænfánanum, umhverfisviðurkenningu frá Landvernd um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum. Vinnuskólinn hefur nú í eitt ár unnið markvisst að því að öðlast þessa viðurkenningu meðal annars fyrir ríka áherslu skólans á umhverfisfræðslu, umhverfisvernd, endurnýtingu og orkusparnað. Grænfáni og skólar á grænni grein er alþjóðlegt verkefni sem miðar að því að auka umhverfismennt og styrkja menntun til sjálfbærni í skólum.
Allir geta gert eitthvað en enginn getur gert allt
„Allir geta gert eitthvað en enginn getur allt“ er slagorð Vinnuskóla Hafnarfjarðar. Sumarið 2015 markar fyrsta tímabilið sem Vinnuskóli Hafnarfjarðar tekur þátt í Grænfánastarfinu. Flokkstjórar Vinnuskóla byrjuðu á því að setja saman sérstakan umhverfishóp, með ungmennum á aldrinum 15-18 ára, sem sinnir meðal annars því mikilvæga hlutverki að sjá umhverfisfræðslu með flokkstjóra. Umhverfishópurinn starfar sem umhverfisnefnd yfir sumarið og fundar þannig reglulega með viðeigandi aðilum þar sem árangur í flokkun, fræðslu og verndun er meðal annars ræddur. Meðal ákvarðana umhverfishóps er að vinna með það fyrir augum að „ekkert sé einnota“ og að úrgangur sé minnkaður. Umhverfishópurinn hefur frá síðasta sumri sett upp vel merktar flokkunartunnur, moltutunnu og losað skólann við öll umhverfisspillandi efni auk þess að bera áfram þekkingu og fræðslu til annarra ungmenna sem við skólann starfa og áfram út í samfélagið. Verkfæri hafa verið endurnýtt, allri notkun á einnota plasti og pappa hætt og margnota mál tekin í notkun í staðinn. Umhverfishópurinn sá til þess að sett markmið næðust með reglulegu eftirliti, upplýsingum og endurgjöf auk þess að starfa eftir aðgerðaáætlun.
Ungur fræðir ungan
Vinnuskólinn starfar ekki eins og hefðbundinn skóli heldur vinnur með óhefðbundnar aðferðir eins og jafningjafræðslumódelið sem í grunninn gengur út á það að „ungur fræðir ungan“. Lögð er áhersla á að sýna og kynna hafnfirskum ungmennum fyrir því hvernig allt passar saman í „stóru myndina“. Sjálfbærni, lýðræði, mengun, matarsóun, tískusóun, gróðurhúsaáhrif og loftlagsbreytingar eru meðal málefna sem í umræðu eru innan hópsins. Áhersla er lögð á góða og innihaldsríka fræðslu til ungmenna í umhverfishópi svo þau geti haldið áfram að fræða önnur ungmenni. Árangur kennslu er síðan kannaður með könnun. Hópurinn hélt starfi sínu áfram allt sumarið, færði fræðslu heim til fjölskyldu og vina, kynntu starf sitt til bæjarbúa, ungmenna á námskeiðum ÍTH, bæjarráðs Hafnarfjarðarbæjar, starfmanna bæjarins og fleiri aðila. Þá hefur hópurinn haldið skiptimarkað, verið með andlitsmálningu fyrir börn þar sem þemað var „móðir jörð“ og gert plakat sem vísar til framlags einstaklingsins og umhverfismeðvitundar hans. Að auki tók hópurinn þátt í hálendisverkefni Landverndar „Hjarta Landsins“ sem fól m.a. í sér fræðslu til gesta og gangandi við Strandgötuna í Hafnarfirði. Eftir vinnu umhverfishóps síðasta sumar stendur eftir hvorutveggja umhverfissáttmáli og umhverfisstefna fyrir vinnuskólann. Sáttmáli sem settur var í upphafi til að marka leiðina og stefna sem unnin var jafnt og þétt yfir sumarið.
Fréttatilkynning