„Eftir langan undirbúning er ánægjulegt að nú liggur fyrir að nýtt hjúkrunarheimili verður tekið í notkun við Sólvang á næsta ári,“ segir Helga Ingólfsdóttir bæjarfulltrúi og formaður verkefnastjórnar um byggingu nýs hjúkrunarheimilis að Sólvangi.
![](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/2016/08/Helga_Ingolfsdottir_minni-300x283.jpg)
Forsagan er orðin nokkuð löng en skrifað var undir samstarfssamning við ríkið árið 2010. Fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir að nýtt hjúkrunarheimili myndi rísa á Kirkjuvöllum en síðan var því breytt og árið 2012 tók til starfa starfshópur um verkefnið og þá hafði ákvörðun um staðsetningu í Skarðshlíð verið tekin.
Helga segist strax hafa haft efasemdir um að þessi breyting á staðsetningu væri skynsamleg og svo fór að nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar sem tók við stjórn bæjarsins sumarið 2014 ákvað að fá óháða úttekt á kostum staðsetningar nýs hjúkrunarheimilis. Niðurstaða Capacent sem vann verkið var lögð til grundvallar endanlegri ákvörðun um val á staðsetningu að Sólvangi.
![](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/2017/03/Hjukrunarheimili_11-1024x575.jpg)
Framkvæmd verksins er með þeim hætti að verkefnastjórn er skipuð fulltrúum allra flokka í bæjarstjórn og með henni starfa fulltrúar eldri borgara í Hafnarfirði. Yfirumsjón með verkefninu hafa sviðstjóri umhverfis- og skipulagsþjónustu og sviðstjóri fjölskyldusviðs. „Núna er hönnun á lokastigi og jarðvinna í fullum gangi og miðað við að henni ljúki í mars. Næsta skref er útboð á reisningu og fullnaðarfrágangi og það verður auglýst í byrjun næsta mánaðar,“ segir Helga.
Hafnarfjörður mun byggja hið nýja hjúkrunarheimili og eiga það að fullu. „Fyrir liggur að ríkið mun taka heimilið á leigu og greiða leigu samkvæmt samningi sem nefndur hefur verið „leiguleið“ en það er verkefni sem ríkið ákvað árið 2009,“ segir Helga. Tíu sveitarfélög gerðu samskonar samning við ríkið og í upphaflega samningnum var miðað við að Hafnarfjarðarbær myndi einnig sjá um rekstur hins nýja hjúkrunarheimilis.
![](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/2017/03/Hjukrunarheimili_12-1024x439.jpg)
Nú hafa samningar tekist við ríkið um að bærinn mun ekki bera ábyrgð á innra starfi hjúkrunarheimilisins heldur eingöngu sjá um rekstur fasteignarinnar, að sögn Helgu.
„Ef litið er til þess að við Hafnfirðingar munum ekki eiga forgang að Sólvangi í framtíðinni frekar en nú er og þess að rekstur margra hjúkrunarheimila hefur verið ákaflega íþyngjandi þá lít ég svo á að betra sé fyrir Hafnarfjörð að ríkið beri ábyrgð á rekstri hjúkrunarheimilisins og það er þá sama rekstrarform og nú er á Sólvangi en Hafnarfjarðarbær hefur aldrei séð um rekstur Sólvangs. Eftir sem áður munum við Hafnfirðingar vilja hafa margvíslega aðkomu að rekstrinum og viðræður eru í gangi við ríkið um að hluti af eldra húsi verði nýttur til að fjölga hjúkrunarrýmum sem veruleg þörf er fyrir“.
Segir Helga að dagdvöl verði áfram í boði á Sólvangi ásamt því að til skoðunar er að flytja þangað starfsemi sem hentar vel þeim markmiðum sem liggja fyrir um að Sólvangur verði miðstöð Öldrunarþjónustu í Hafnarfirði.