Ingvar S. Jónsson f.v. íþróttafulltrúi hjá Hafnarfjarðarbæ var heiðraður í dag af Íþróttabandalagi Hafnarfjarðar f.h. íþróttafélaganna í Hafnarfirði. Var það gert í hádeginu í félagsheimili Golfklúbbsins Keilis.
![](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/2017/03/Ingvar-heiðraður-24-1024x364.jpg)
Hrafnkell Marinósson, formaður ÍBH, rakti feril Ingvars í Hafnarfirði en hann flutti til bæjarins 1974. Hóf hann að þjálfa yngri flokka hjá Haukum í handbolta og hefur hann verið af sumum kallaður faðir körfuknattleiksins í Hafnarfirði. Hann var íþróttakennari og síðar íþróttafulltrúi þar til honum og öðrum starfsmönnum íþróttaskrifstofunnar var sagt upp í hagræðingu fyrir skömmu.
Heiðraði Hrafnkell Ingvar með gullmerki Íþróttabandalags Íslands og þakkaði honum vel unnin störf.
![](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/2017/03/Ingvar-heiðraður-39-1024x553.jpg)
Arnar Borgar Atlason formaður Keilis þakkað Ingvari einnig fyrir góð störf og var hann heiðraður af Keili með gullmerki félagsins.
![](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/2017/03/Ingvar-heiðraður-54-300x277.jpg)
Guðbjörg Norðfjörð varaformaður Körfuknattleikssambands Íslands þakkaði Ingvari góð störf og það gerðu Viðar Halldórsson, formaður FH, Guðmundur Árni Stefánsson og Ingvar Viktorsson, fv. bæjarstjórar og FH-ingar og Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri Hauka og fv. bæjarstjóri.
Voru öll á einu máli að Ingvar hafi rækt sitt starf af mikilli alúð, verið óumdeildur og verið íþróttamálum í Hafnarfirði til heilla.
Ingvar þakkaði allan þennan heiður og sagðist hafa átt mjög skemmtilegan tíma og átt góð samskipti við íþróttafélögin.
![](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/2017/03/Ingvar-heiðraður-62-1024x441.jpg)
![](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/2017/03/Ingvar-heiðraður-73-291x300.jpg)
![](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/2017/03/Ingvar-heiðraður-60-300x284.jpg)