fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimÍþróttirHandboltiHaukastelpur úr leik eftir að hafa gloprað niður 7 marka forskoti

Haukastelpur úr leik eftir að hafa gloprað niður 7 marka forskoti

Töpuðu þremur leikjum gegn Fram í röð

Það var margt sem benti til að kvennalið Hauka í handknattleik væri að leika sinn síðasta leik í sumar áður en þriðji leikur þess við Fram hófst. Fram hafði sigrað í fyrstu tveimur leikjunum en vinna þurfti þrjá leiki til að komast í úrslit.

En Haukar komu eldheitar til leiks og ætluðu greinilega ekki að láta slá sig út. Haukar voru miklu betra liðið í fyrri hálfleik og voru sex mörkum yfir í hálfleik, 16-10. Í byrjun síðari hálfleik komust þær í 17-10 og um miðjan hálfleikinn var munurinn 5 mörk. Fram saxaði svo hægt og rólega á forskot Hauka og jöfnuðu svo í 24-24 þegar um tvær mínútur voru eftir. Hvorugu liðinu tókst svo að skora og framlengja þurfti leiknum.

Aftur höfðu Haukar frumkvæðið en ekki munaði miklu og voru Haukar 2 mörkum yfir í hálfleik (2x 5 mín). Aftur söxuðu Fram á forskotið og jöfnuðu þegar 5 sekúndur voru eftir, 27-17.

Í síðari framlengingunni var það svo Fram sem hafði forskotið og náði 3 marka forskoti 30-27. Þetta bil náðu Haukar ekki að jafna og leiknum lauk með 3 marka sigri Fram, 31-28 og er liðið því komið í úrslit en lið Haukanna er komið í sumarfrí.

Grátlegt að 7 marka forysta Haukanna hafi ekki dugað.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2