fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirTóku til hendinni við Tónkvísl

Tóku til hendinni við Tónkvísl

Nokkurra ára rusl fjarlægt

Nokkrir kennarar Tónlistarskóla Hafnarfjarðar tóku til hendi á hreinsunardegi bæjarins í dag þegar hvatt var til þess að starfsmenn stofnana bæjarins og nemendur færu út og hreinsuðu í sínu nærumhverfi. Í Tónkvísl hefur lúðrasveit skólans aðsetur og þar er einnig hryndeild tónlistarskólans. Á bakvið húsið safnast oft ýmis konar rusl. Í snjóþyngslum á síðasta ári brotnaði tré í næsta garði og féll niður í baklóðina. Var ráðist á trjágreinina í ár sem vélsög. Hún fær nú nýtt hlutverk þar sem Fjölgreinadeild Lækjarskóla hefur óskað eftir að nýta hana.

Búið að skera smærri greinar í burtu.

Rusl var hreinsað á bak við húsið og einnig var gróður upp við húsið svo sem fíflar og gras fjarlægður og sópað.

Þetta á borð á örugglega eftir að koma að góðum notum ef góðviðri heldur áfram eins og í dag.
Fyrir hreinsun.
Eftir hreinsun.

 

Gott að geta snyrt í sínu nærumhverfi.

Ánægð eftir vel unnið verk.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2