Leigubílastöðin A-stöðin fagnaði 10 ára afmæli sínu 1. maí sl. Afmælisterta var í boði á báðum starfsstöðum fyrirtækisins, Í Hafnarfirði og í Reykjanesbæ.
Í Hafnarfirði fengu fyrstu bílstjórarnir að gæða sér á kökunni á ellefta tímanum um morguninn en alls eru 18 bílstjórar hjá stöðinni í Hafnarfirði. Stöðin í Hafnarfirði stendur við Hjallahraun og þar ræður ríkjum hún Jóna Birna Harðardóttir, sem hóf störf fyrir leigubílstjóra í Hafnarfirði fyrir tæplega 38 árum. Hún var lengst af á „Stöðinni“ á Reykjavíkurvegi sem lengi var samkomustaður Hafnfirðinga.
Segir Jóna margt hafa breyst. Viðskiptavinahópurinn hefur breyst og ölvaðir sjómenn ekki lengur algengur viðskiptamennahópur eins og þá var. Segir hún að nú sé Reykjanesbrautin mikilvægt atvinnusvæði og sinna starfsmenn stöðvarinnar þjónustu við flugfarþega á Keflavíkurflugvelli.
Stofnun stöðvarinnar kom í kjölfars óróa á leigubílamarkaðnum. Það voru fyrrum bílstjórar Aðalbíla í Keflavík og Bifreiðastöðvar Hafnarfjarðar, BSH sem stofnuðu nýju stöðina.
Til að panta bíl hjá stöðinni er hringt í síma 520 1212.