fbpx
Laugardagur, nóvember 16, 2024
target="_blank"
HeimFréttirPólitíkHeilbrigt atvinnulíf

Heilbrigt atvinnulíf

Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Jafnaðarmenn eru ekki á móti því að fólk verði auðugt af dugnaði sínum og útsjónarsemi. Öðru nær. Um að gera – það á að greiða götu lítilla og meðal­stórra fyrirtækja svo að þau vaxi og dafni, eigendum sín­um, starfsfólki og sam­félaginu öllu til hagsbóta. Þess vegna viljum við meðal ann­ars lækka tryggingargjald.

Það er hins vegar ekki hugsjóna­mál okkar jafnaðar­manna að menn geti orðið auðugir hvað sem það kostar öll hin.

Okkur finnst ekki rétt að fólk hagnist á því að vera í einokunarstöðu við að selja okkur varning sem við verðum að kaupa. Okkur finnst ekki sanngjarnt að menn fái úthlutað ókeypis einkaaðgangi að sameiginlegum auðlindum og fari svo að selja öðrum aðgang að þessum einkarétti – jafnvel að veðsetja hann fyrir gríðarlegar fjárhæðir sem eru svo faldar í skattaskjólum. Við erum ekki hrifin af skattaskjólum. Við erum ekki hrifin af kúlulánakapítalisma. Við erum ekki hrifin af gervivaxtarbólum sem springa fyrr en varir með hörmulegum afleiðingum fyrir aðra en þá sem blésu út bólurnar. Við erum ekki hrifin af því að fólk raki saman auði á því að hagnast á veikindum annarra, eða hinu að kenna forréttindabörnum forrétt­inda­­fræði á meðan hið almenna kerfi sé fjársvelt.

Fólk á að njóta sín

Okkur dreymir um heilbrigt atvinnulíf þar sem sníkju­lífsóværan nær ekki að þrífast og reglugerðir koma í veg fyrir einokun og fjárryk­sugur. Við viljum að dafni bílaverk­stæði og bókaútgáfur, forritun, ferða­þjónusta og matvælagerð, blómabúðir, álfaleiðsögn og stjörnuskoðun – og yfirleitt hvað það sem fólki hugkvæmist að nota hæfileika sína í. Því að hugsjón jafnaðarmanna er sú að fólk njóti sín. Velferðarkerfið og vanrækta innviði ætlum við að fjármagna með auð­linda­gjöldum, að norskri fyrirmynd. Við ætlum að hækka skatta á stóreignafólk en lækka þá á venjulegt launafólk. Um þetta meðal annars snýst pólitík: hvernig við skiptum gæðunum.

Guðmundur Arndri Thorsson, oddviti Samfylkingarinnar í SV kjördæmi

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2