fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirMenning og mannlífBjargaði priki en ekki drengnum

Bjargaði priki en ekki drengnum

Hundur og drengur bregða á leik í Flensborgarhöfn

Á siglingaviku sem haldin hefur verið í Hafnarfirði hafa börn og unglingar skemmt sér við siglingar og æfingar undir leiðsögn sérfróðra manna. Ekki eru allir sem treysta sér einir út á báta og halda sér í landi – að mestu. Þessi ungi drengur nýtti góða veðrið í dag og óð út í sjó og synti. Hafði hann hent spýtu út í sjóinn og brá svo við að hundur sem hann þekkti ekkert til elti strákinn út í sjó og leit út fyrir að hann ætlaði að bjarga stráknum sem var þó ekki í neinni hættu. Hundurinn hélt hins vegar framhjá drengnum og sótti spýtuna.

Hvorki drengnum eða hundinum varð meint af volkinu en óvíst er hjá hvorum gleðin var meiri.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2